Heiðrun stigahæstu hunda Vinnuhundadeildar HRFÍ
Heiðrun stigahæstu hunda Vinnuhundadeildar HRFÍ fyrir árið 2022 var haldin síðast liðinn sunnudag, 12 febrúar.En þar voru mæðgurnar ISETrCh ISObCh ISTrCh OB-III OB-II OB-I Forynju Aska heiðruð sem stigahæsti Sporahundur ársins 2022 og OB-II OB-I Forynju Bara Vesen var stigahæsti Hlýðnihundur ársins (annað árið í röð).
Gaman er að segja frá því að það voru eingöngu Forynju hundar sem náðu að ljúka spora prófi á árinu 2022, en það sem stóð upp úr var hún Forynju Aska sem var fyrsti Schaferinn á íslandi til ná Spor Elite og fyrst til að fá titilinn ISETrCh (Elite sporameistari), aðrir hafa reynt.
Einnig er gaman að segja frá því að allir hundarnir sem luku sporaprófi í ár eru öll afkvæmi hennar Ösku, eða þau Forynju Bara Vesen, Forynju Breki, Forynju Bestla og Forynju Bría. Tvö þeirra hlutu 1.einkunn í Spor I og þrjú þeirra hlutu 1.einkunn í Spor II.
Helstu niðurstöður voru þessar :
ISETrCh ISObCh ISTrCh OB-III OB-II OB-I Forynju Aska
· Sporahundur árins 2022
· Stigahæst hundurinn í Spor Elite
OB-II OB-I Forynju Bara Vesen
· Hlýðnihundur ársins 2022
· Stigahæsti hundurinn í Hlýðni II
· Þriðji stigahæsti hundurinn í Spor II
Forynju Bestla
· Stigahæsti hundurinn í Spor I
· Annar stigahæsti hundurinn í Spor II
· Annar stigahæsti Sporahundur ársins
Forynju Breki
· Stigahæsti hundurinn í Spor II
Forynju Bría
· Annar stigahæsti hundurinn í Spor I
· Þriðji stigahæsti Sporahundur ársins