Ísland Winner og Winter Wonderland sýning HRFÍ 26-27. nóvember
Sýningarárinu 2022 lauk svo sannarlega með látum. Forynju hundunum og ættmóður þeirra Vonzius Asynju gekk ofboðslega vel. Snögghærðu hundarnir okkar unnu öll sína flokka með excellent og meistaraefni og við fengum 4 nýja titla í hús.
Bestu ungliðar tegundar voru ISJW-22 Forynju Gizmo og ISJW-22 Forynju Gló. Sigurgöngunni lauk ekki í ungliðum, en Ynjan okkar gerði sér litið fyrir og varð Besta tík tegundar með Íslenskt- og Norðurlanda meistarastig. Hún varð svo Besti öldugur tegundar og hlaut titilinn ISVW-22, og að lokum valdi dómarinn hana BESTA HUND TEGUNDAR af 54 hundum. Þar hlaut hún titilinn ISW-22, aðeins nokkrum dögum fyrir 9 ára afmælið sitt. ISW-22 ISVW-22 ISVetCh ISObCh OB-III OB-II OB-I Vonziu's Asynja endaði langan dag á því að taka þátt í tegundarhópi 1. Þar náði hún 2. sæti, en það er besti árangur snögghærða schäfersins í ár!
Eftir árið 2022 er Forynju ræktun stigahæsta Schäfer ræktun hjá HRFÍ yfir allar tegundir og Ynja stigahæsti snögghærði Schäfer ársins. Við eignuðumst 3 nýja sýningar meistara á árinu og áttum ótrúlegum vinnuárangri að fagna. Takk allir eigendur fallegu Forynju hundanna fyrir að taka þátt í þessu með mér, án ykkar væri þetta ekki mögulegt
Hvolpafl. 3-6 mánaða
Forynju Hroki SL 2.sæti
Forynju Hel L 3. sæti
Rakkar
Ungliða fl.
Forynju Gizmo : Excellent 1. sæti með CK og Ungliðameistarstig, BOB Junior og fékk nýjann titil : ISJW-22 – Ísland Junior Winner.
Vinnuhunda fl :
Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn : Excellent 1. sæti með CK og 3. besti rakki tegundar.
Meistara fl.
Ivan von Arlett : Excellent 1. sæti með CK og 2. besti rakki tegundar með vara norðurlanda meistarastig.
Lider von Panoniansee : Excellent 2. sæti með CK.
Tíkur
Ungliða fl.
Forynju Gló : Excellent 1. sæti með CK og Ungliðameistarstig, BOS Junior og fékk nýjann titil : ISJW-22 – Ísland Junior Winner.
Forynju Grace: Excellent 3.sæti
Forynju Gleym Mér Ei : VG
Forynju Freyja : VG
Forynju Frökk : VG
Opinn fl :
Welincha‘s Izla Fra Noregi : Excellent 2. sæti með CK
Vinnuhunda fl :
Forynju Aska : Excellent 1. sæti með CK
Forynju Bara Vesen : Excellent 2. sæti með CK
Forynju Ára : Excellent 3. sæti
Öldunga fl .
Vonziu‘s Asynja : 1.sæti m. excellent og CK, Besta tík tegundar, Besti Öldungur Tegundar, Besti hundur Tegundar. 2.sæti í tegundarhóp 1.
Íslenskt meistarastig, Norðurlanda meistarastig og með tvo nýja titla ISVW-22 og ISW-22.