OB-I Forynju Einstök

Einstökin okkar tók þátt í síðasta hlýðnipróf árins á vegum Vinnuhundadeildar HRFÍ sem var haldið í gær, sunnudaginn 21. nóvember.

Einstök gerði sér lítið fyrir og landaði 1.sætinu af fimm hundum með 181,5 stig og 1.einkunn !
Þar með hefur Einstök náð 3x 1.einkunn í Hlýðni I og hefur þar með lokið öllum kröfum til að hljóta OB-I titilinn. Gaman er að segja frá því að hún Einstök er einungis 16 mánaða og er þar með yngsti hundurinn á Íslandi til að hljóta þennan titil !

Previous
Previous

Ísland Winner og Winter Wonderland sýning HRFÍ 26-27. nóvember

Next
Next

Nana Primo Grande