Nana Primo Grande

Svarta drottningin okkar hún Nana varð 2 ára þann 10. okt síðast liðinn og í tilefni dagsins skelltum við okkur með hana Nönu í mjaðma og olnboga myndatöku og að sjálfsögðu var niðurstaðan eins frábær og hún er sjálf.
HD : A1 eða Excellent
ED : A eða Normal

Þetta er besta mögulega niðurstaða sem hægt er að fá frá OFA og það eru alls ekki margir hundar hér á landi sem geta státað sig af því að hafa fengið A1 í mjöðum.

Það sem það verður gaman að fá hvolpa undan þessum gullmola sem hún Nana er !

Previous
Previous

OB-I Forynju Einstök

Next
Next

Hlýðnipróf Vinnuhundadeildar HRFÍ 23.10.2022