Hlýðnipróf Vinnuhundadeildar HRFÍ 23.10.2022
Næst síðasta hlýðnipróf ársins var haldið í dag, sunnudaginn 23 okt, tólf hundar voru skráðir prófið og áttum við hjá Forynju ræktun tvo fulltrúa í prófinu í dag og voru það Forynju Gleym Mér Ei og Forynju Einstök.
Forynju Gleym Mér Ei eða Eldey eins og hún er kölluð og eigandi hennar Anna Lilja voru báðar að þeyta frumraun sína í hlýðni og lönduðu þær 1.sætinu í Hlýðni Brons með 135 stig af 180 mögulegum. Vert er að taka fram að Eldey er einungis 10 mánaða ! Frábær árangur hjá þeim.
Síðan var það Forynju Einstök sem tók þátt í Hlýðni I, en hún endaði önnur af sjö með 178,5 stig, 1.einkunn og með Silfurmerki HRFÍ. Þá vantar hana Einstök bara eina 1.einkunn í viðbót til að hljóta OB-I titilinn.