Hlýðnipróf Vinnuhundadeildar HRFÍ 26.05.2022

Við hjá Forynju ræktun áttum 4 hunda af 10 sem voru skráðir í hlýðniprófið í gær og áttum við 1.sætið í öllum flokkum sem keppt var í !
Vesen fékk sína þriðju 1.einkunn í Hlýðni II og hefur hún þar með hlotið titilinn OB-II. En Vesen er þar með þriðja í sínum ættlið sem nær þessum árangri, en einungis tveir aðrir schaferhundar á Íslandi hafa náð þessum árangri og er það amma hennar Vesen hún ISObCh OB-III OB-II OB-I Vonziu’s Asynja og síðan mamma hennar Vesen hún ISObCh ISTrCh OB-III OB-II OB-I Forynju Aska

Hlýðni Brons

1. sæti með 139 stig og Bronsmerki HRFÍ - Forynju Dropi (Askur) og Björgvin Ingvar Ormarsson

2. sæti með 135 stig – Forynju Einstök

Hlýðni I

Með 146 stig II. einkunn – Forynju Bestla (Þoka) og Maria Jonsdottir

Hlýðni II

1. sæti með 170 stig I. einkunn - Forynju Bara Vesen

Previous
Previous

Staðfest væntanlegt got - Forynju H-Got

Next
Next

Fyrsta sporapróf árins 2022.