Staðfest væntanlegt got - Forynju H-Got

Forynju ræktun kynnir með miklu stolti væntanlegt H-got í lok júní 2022

í lok júní er væntanlegt í heiminn ótrúlega spennandi got undan fallegu innfluttu hundunum okkar Izlu og Joker. Mikil eftirvænting er eftir gotinu, enda margra ára vinna og pælingar á bak við þessa pörun.
Izlu festum við kaup á eftir að við fengum hálfbróður hennar multich Welincha’s Whimpy tímabundið til Íslands. Whims vann hér besti hundur sýningar en því miður fengum við ekki afkvæmi undan honum. Ræktendurnir hans, vinir okkar Leif og Ragnhild Belgen voru með spennandi got undan mömmu hans og glæsi rakkanum VA1 Falkoens Vasko og höfðum við samband við þau og pöntuðum okkur tík úr gotinu.
Við fengum Izlu til okkar í lok árs 2019 og hefur hún átt góðu gengi að fagna síðan þá. Hún hefur 3. sinnum mætt á hundasýningu hérlendis og í tvö af þeim skiptum hefur hún orðið önnur besta tík tegundar. Hún er með 1. ungliða meistarastig, 1. íslenskt meistarastig, varð besti ungliði tegundar og stigahæsti ungliði schaferdeildarinnar árið 2020 ásamt því að hafa hlotið bronsmerki HRFÍ í hlýðni.
Izla á fyrir 1 got hja okkur, E-gotið, en þau eru virkilega fallegir og geðgóðir einstaklingar sem strax eru farin að gera góða hluti bæði á sýningum og í vinnu, á íslandi sem og erlendis.

BH-VT IGP1 KKl1 Ck’s Team Joker er nýjasta viðbótin í litlu ræktunina okkar, en við keyptum hann 4 vikna gamlan af Caner Kuzman vini okkar í Tyrklandi. Hann valdi hann af kostgæfni fyrir okkur, en um leið og hann sagði okkur frá þessu væntanlega goti hjá sér þá var staðfest pöntun á rakka úr því. Mamma hans Jokers heitir Serap vom Rumbachtal, en Serap varð V6 á siegershow og var heiðruð fyrir bestu bitvinnu af öllum tíkum á sýningunni. Pabbi hans Jokers er svo hinn heimsfrægi VA1 Willy vom Kuckucksland, en hann sigraði siegershow í þýskalandi 3. sinnum, fyrst ungliða flokkinn árið 2014 og svo vinnuhundaflokkinn árið 2018 og 2019, en samtals hefur hann sigrað sinn flokk á 10 siegershow sýningum um alla evrópu. Ásamt þessum frábæra árangri hefur hann gefið af sér glæsileg afkvæmi sem feta í fótspor föður síns.
Gotið sem Joker er úr er hefur skarað fram úr á allan hátt, 6 hvolpar voru í gotinu og hafa þau öll verið mynduð A/A mjaðmir og olnbogar og hafa 4 þeirra lokið vinnuprófum og fengið ræktunardóminn Kkl1.
Joker kom til okkar fyrir nokkrum mánuðum og hefur strax heillað alla sem hann hittir uppúr skónum. Hann er geðgóður og vinnusamur hundur með einstaklega jafna byggingu og gríðarlegar hreyfingar. Það verður mjög gaman að fylgjast með honum í ræktun hjá okkur í framtíðinni.

Gotið undan þeim er væntanlegt í heiminn um 26 júní og verða þessir litlu einstaklingar tilbúnir að fara á sín framtíðar heimili í lok ágúst. Hvolparnir verða afhentir heilsufarsskoðaðir, bólusettir, örmerktir, skráðir hjá Dýraauðkenni, ættbókarfærðir hjá HRFÍ og með veglegan startpakka frá eukanuba.

Previous
Previous

Alþjóðleg og Reykjavík Winner sýning 12. júní

Next
Next

Hlýðnipróf Vinnuhundadeildar HRFÍ 26.05.2022