Fyrsta sporapróf árins 2022.

Fyrsta sporapróf árins var haldið fimmudaginn 18 maí við Guðmundarlund í Kópavogi.
Dómari var Albert Steingrímsson og prófstjóri var Eva Kristinsdóttir.
En auðvita áttum við hjá Forynju ræktun frábæra fulltrúa í prófinu, en hún Forynju Bestla mætti með eigandanum sínum henni Maríu í Spor 1 og landaði hún 1.sætinu með 1.einkunn með heil 97 stig af 100 mögulegum, nánast fullt hús stiga, alveg hreint út sagt frábær árangur !
Forynju Aska mætti síðan í fyrsta skiptið í Spor Elite og lauk hún prófinu með 72 stig eða 3.einkunn þar sem hún núllaði í "rammanum" í byrjun sem tapaði okkur 20 stigum en skilaði inn 8 millihlutum (af 9) og endahluti. Þrátt fyrir 3.einkunn þá er Aska fyrsti hundurinn til að hljóta viðurkennda einkunn í Spor Elite í fyrstu tilraun og er hún annar hundurinn á íslandi til að fá viðurkennda einkunn í Spor Elite.

Previous
Previous

Hlýðnipróf Vinnuhundadeildar HRFÍ 26.05.2022

Next
Next

Forynju Einstök