Forynju Einstök

Við skelltum okkur með hana Einstök (ásamt fleirum) í smá ljósmynda session út á landi síðustu helgi.
Það sem það er gaman að taka myndir af þessum mola, en hún Einstök varð 10 mánaða í dag, 11.05.
En hún er ekki bara gullfalleg heldur er hún líka yndislega góð, klár og dugleg en hún er yngsti síðhærði schaferinn til að ljúka Hlýðni Brons aðeins ný orðin 9 mánaða þegar hún lauk því og það með góðum árangri eða með 159 stig af 180 mögulegum.

Forynju Einstök
F: RW-19 SG1 SG61 Lider von Panoniansee
M: Welincha’s Izla Fra Noregi

Previous
Previous

Fyrsta sporapróf árins 2022.

Next
Next

Hlýðnipróf á sumardaginn fyrsta.