Hlýðnipróf á sumardaginn fyrsta.
Í dag var haldið hlýðnipróf á vegum Vinnuhundadeildar HRFÍ. Mjög góð skráning var í prófið eða 15 hundar þar af voru 4 Forynju hundar að taka þátt. Virkilega gaman að sjá hvað fólk er duglegt með þessa flottu vinnu tegund sem við eigum.
Allir hundarnir okkar sem tóku þátt náðu einkun í sínum prófum og voru sér og tegundinni til sóma. Úrslit voru eftirfarandi
Hlýðni Brons :
2. sæti Forynju Einstök - 159 stig og Bronsmerkið
4. sæti Forynju Dropi - 107 stig
Hlýðni I :
4. sæti Forynju Bestla - 171 stig, 1.einkun og Silfurmerkið
Hlýðni II :
1. sæti OB-I Forynju Bara Vesen - 184 stig, 1.einkunn og Gullmerkið
Til hamingju allir sem voru í prófi og gleðilegt sumar !