Forynju Ezzla í Noregi

Vinkona okkar í Noregi hún Toril Bjerke hafði samband við okkur þegar að ljóst var að væntanlegt got væri undan Izlu og Lider, en Toril passaði þau bæði fyrir okkur í Noregi áður en að þau mættu til Íslands. Toril vildi endilega fá hvolp undan þessu flotta pari og var það því ákveðið að hún fengi efnilegustu tíkina enda stefnan sett á sýningar útí hinum stóra heimi.

Ezzla ásamt systkinum sínum 8, fæddist 11. júlí 2021 og kom Toril til landsins þegar að þau voru 7 vikna og í sameiningu völdum við réttu tíkina fyrir hana.

Ezzla mætti á sýna fyrstu sýningu á Íslandi í nóvember í fyrra og stóð þar uppi sem sigurvegari, Besti hvolpur tegundar. Hún hélt svo utan í janúar og hefur síðan þá verið í mikilli þjálfun, bæði fyrir vinnu og sýningar og sýnir glæsilega takta á öllum sviðum. Ásamt því að vera yndislegur heimilishundur sem bræðir alla sem hún kynnist.

Um síðast liðna helgi mætti Ezzla svo á sína fyrstu sýningu í Noregi. Þar endurtók hún leikinn frá því á Íslandi og varð Besti hvolpur tegundar 6-9 mánaða. Fékk hún glæsilega umsögn frá Dannska schafer dómaranum Pelle Lundkvist og heillaði bæði hann og áhorfendur. Það verður gaman að fylgjast með þessari glæsilegu tík og hennar björtu framtíð í Noregi.

Previous
Previous

Hvolpahittingur 20.mars

Next
Next

Norðurljósasýning 5.-6. mars 2022