Hvolpahittingur 20.mars
Góða veðrið í gær var heldur betur nýtt og tókum við hvolpahitting með hvolpum úr G, F og É gotunum okkar.
Það voru ekki margar myndir teknar þar sem að það gleymdist að hlaða vélina fyrir hittinginn og varð hún fljótt batteríslaus. En það skemmmtu allir sér konunglega, en það er svo frábært að fá að fylgjast með hvolpunum stækka og dafna hjá nýju eigendunum sínum.