Norðurljósasýning 5.-6. mars 2022
Fyrsta sýning ársins var haldin helgina 5-6 mars og var Schaferinn sýndur sunnudaginn 6. mars.
Við hjá Forynju ræktun áttum góðu gengi að fagna eins og vanalega.
Við mættum með sjö hvolpa í heildina og fengu þeir allir einkunina Sérlega Lofandi og áttum við Besta Hvolp Tegundar í bæði snögghærðum og síðhærðum.
En hún Forynju Frekja sem er ný orðin 4 mánaða og eigandi hennar Karolína létu það ekki nægja að vinna bara tegundina heldur fóru þær saman inní stóra hringinn og lönduðu 1.sætinu í keppninni um besta ungviði sýningar (4-6 mánaða).
Velgengnin hélt áfram í flokki fullorðna og varð hann Pablo okkar 2.besti rakki tegundar og með sitt fyrsta Íslenska meistarastig og OB-I Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn “FennI” var eini Íslands ræktaði rakkinn í snöggu sem fékk meistaraefni eða ck á sýningunni og endaði hann sem 3.besti rakki tegundar.
OB-I Forynju Bara Vesen endaði sem 3.besta tík tegundar og hún ISObCh OB-III OB-II OB-I Vonziu’s Asynja endaði sem besti öldungur tegundar.
Síðhærðir Hvolpar
Forynju Ég Man Þig - 1. sæti m. SL hvolpa fl. 4-6 mánaða - Besti hvolpur tegundar Síðhærðir
Forynju Ecco - 2. sæti m. SL hvolpa fl. 6-9 mánaða Síðhærðir
Forynju Efi - 3. sæti m. SL hvolpa fl. 6-9 mánaða Síðhærðir
Forynju Einstök 2. sæti m. SL hvolpa fl. 6-9 mánaða Síðhærðir
Snögghærðir Hvolpar
Forynju Frekja - 1. sæti m. SL hvolpa fl. 4-6 mánaða - Besti hvolpur tegundar og Besti hvolpur sýningar
Forynju Fönn - 2. sæti m. SL hvolpa fl. 4-6 mánaða
Forynju Freyja - 3.sæti m. SL hvolpa fl. 4-6 mánaða
Snögghærðir Rakkar
Forynju Dropi - 1. sæti m. Excellent í Unghundafl.
Forynju Derringur - 3 sæti m. very good í Unghundfl.
Pablo vom Team Panoniansee - 1. sæti m. Excellent, Meistaraefni í opnum fl. 2. besti rakki tegundar m. Íslenskt meistarastig.
Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn - 1. sæti m. Excellent, Meistaraefni í Vinnuhundfl. 3. besti rakki tegundar.
Forynju Breki - 2. sæti m. Excellent í Vinnuhundafl.
Snögghærðar Tíkur
Welincha's Izla Fra Noregi - 2.sæti m. excellent í opnum fl.
Forynju Brynja - 3.sæti m. very good í opnum fl.
Forynju Bara Vesen - 1. sæti m. Excellent, Meistaraefni í Vinnuhundfl. 3. besta tík tegundar.
Forynju Ára - 2. sæti m. Excellent í Vinnuhundfl.
Forynju Bestla - 3. sæti m. very good í Vinnuhundfl.
Vonziu's Asynja - 1. sæti Excellent í Öldungafl. Besti Öldungur tegundar.