Deildarsýning Schaferdeildarinnar 3. sept ‘22

Laugardaginn 3.sept hélt Schaferdeildin deildarsýningu eftir langa Covid pásu, en þetta var stærsta deildarsýningin til þessa eða 98 hundar skráðir í heildina, sýningin var haldin í Guðmundarlundi og fengum við æðislegt veður og fóru allir heim vel sólbrenndir og sætir. Dómari var Svein Egil Vagle frá Noregi.

 En dagurinn var frábær í alla staði og gekk hundunum okkar frábærlega, en það sem stóð helst upp úr var að við hjá Forynju ræktun áttum best in show í öllum flokkum nema yngri hvolpaflokki, þar sem við vorum með engan hund skráðan.

 Við fengum tvo nýja meistara en hann RW-19 Lider von Panoniansee varð besti rakki og fékk sitt þriðja og síðasta Íslenska meistara stig og er þá orðinn Íslenskur sýningarmeistari og bætir við sig titlinum ISShCh og gamlan okkar hún ISObCh OB-III OB-II OB-I Vonziu‘s Asynja fékk sitt þriðja síðasta Íslenska öldunga meistarastig og er þar með orðinn Íslenskur öldungameistari og bætir við sig titlinum ISVetCh. Ynja kláraði einnig sýningarferilinn með stæl með því að verða besti öldungur sýningar! 

  En toppurinn á deginum var klárlega hún ISEliteTrCh ISObCh OB-III OB-II OB-I Forynju Aska, en hún mætti hress og kát inn í vinnuhunda flokk með vinkonu sinni Kristínu Erlu, vann vinnuhunda flokkinn fór áfram í bestu tík, vann allar tíkurnar fór síðan og keppti við besta rakkann, hann Lider okkar, gerði sér lítið fyrir og vann hann , fór síðan keppti um besta hund sýningar og vann besti hundur sýningar !

Forynju Grace, dóttir hennar Ösku, gerði sér einnig lítið fyrir og vann besta hvolp sýningar í flokki 6-9 mánaða.
 Forynju Efi kom sá og sigraði ungliðaflokkinn í síðhærðum varð síðan 3 besti rakki tegundar og besti ungliði tegundar. Efi endaði síðan daginn á því að verða besti ungliði sýningar !

Ræktunar hópurinn í snögghærðum endaði einnig sem besti ræktunar hópur sýningar, þriðju sýninguna í röð !


BESTI HVOLPUR SÝNINGAR 6-9 MÁNAÐA : Forynju Grace
BESTI UNGLIÐI SÝNINGAR : Forynju Efi
BESTI ÖLDUNGUR SÝNINGAR : ISVetCh* ISObCh OB-III OB-II OB-I Vonziu‘s Asynja
BESTI RÆKTUNARHÓPUR SÝNINGAR : Forynju ræktun
BESTI HUNDUR SÝNINGAR : ISEliteTrCh ISObCh OB-III OB-II OB-I Forynju Aska

 

Síðhærðir :

Forynju Efi : Ungliðafl. – 1.sæti m Excellent, Ck, 3.besti rakki tegundar, BOB ungliði, BIS Ungliði m. Ungliða meistarastig
Forynju Ecco : Ungliðafl. – 2. sæti Excellent, Ck, 4.besti rakki tegundar, vara-Ungliða meistarastig
Forynju Ég man Þig: : Ungliðafl. – VG
Forynju Einstök: Ungliðafl. – Excellent

Forynju Ræktunarhópur síðhærður: Heiðursverðlaun 2.sæti
 

Snögghærðir:

Forynju Gizmo : Hvolpa fl. 6-9 mánaða - 2. sæti  sérlega lofandi  
Forynju Grace: Hvolpa fl. 6-9 mánaða - 1. sæti m. sérlega lofandi, Besti hvolpur tegundar, Besti hvolpur sýningar.
Forynju Gló:  Hvolpa fl. 6-9 mánaða - 2. sæti m. sérlega lofandi
Forynju Gleym Mér Ei: Hvolpa fl. 6-9 mánaða - 3. sæti m. sérlega lofandi
Forynju Fenrir : Ungliðafl. - 2.sæti m. excellent
Forynu Ég Er Kominn Heim : Ungliðaflokkur – 3.sæti m. excellent
Lider von Panoniansee : Opinn fl. – 1.sæti m. excellent og ck, Besti rakki tegundar m. Íslensk meistarastig
Pablo vom Team Panoniansee : Opinn fl. – 2. sæti m excellent og ck, 4 besti rakki tegundar.
Forynju Dropi : Opinn fl – VG
Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn : Vinnuhunda fl. – 1.sæti m. excellent og ck, 3. besti rakki tegundar.
Forynju Breki : Vinnuhunda fl – 2. sæti m excellent
Ck‘s Team Joker : Vinnuhunda fl – 3. sæti m. Vg
Forynju Frekja : Ungliða fl. – 1.sæti m. excellent
Forynju Freyja : Ungliða fl – 3.sæti m. excellent
Nana Primo Grande : Unghunda fl. – 4. sæti m. excellent
Forynju Dögun : Opinn fl. – 4.sæti m. VG
Forynju Aska : Vinnuhunda fl. – 1.sæti m. excellent og ck, Besta tík tegundar, Besti hundur tegundar og Besti hundur sýningar m. Íslensk meistarastig
Forynju Bara Vesen : Vinnuhunda fl. – 2.sæti m. excellent og ck, 3. besta tík tegundar.
Forynu Bestla : Vinnuhunda fl. – 4. sæti m. VG

Forynju ræktun : 1.sæti m. heiðursverðlaun. Besti ræktunahópur tegundar, Besti ræktunarhópur sýningar

Previous
Previous

ISjCh Forynju Ecco

Next
Next

NKU Norðurlandasýning HRFÍ 20.-21. Ágúst