NKU Norðurlandasýning HRFÍ 20.-21. Ágúst
Þá er enn einni sýningunni lokið, en síðast liðna helgi var haldin NKU Norðurlandasýning HRFÍ. Við hjá Forynju ræktun áttum góðan hóp af hundum á sýningunni og gékk öllum hundunum okkar vel.
En það voru nokkur atriði sem stóðu uppúr eftir helgina og til að byrja með var að hann Forynju Gizmo okkar, hann byrjaði á að vinna rakkana í eldri hvolpaflokki og fór síðan og keppti við bestu tíkina og vann hana einnig og endaði sem Besti hvolpur tegundar 6-9 mánaða, en hann hætti ekki þar heldur fór hann inn í stórahringinn og keppti um sæti í besta hvolpa sýningar og hreppti hann 2.sætið !
Forynju Dropi kom sá og sigraði opna flokkinn og endaði daginn sem 2.besti rakki tegundar og hann Pablo okkar 3.besti rakki tegundar.
Gamla konan okkar hún ISObCh OB-III OB-II OB-I Vonziu’s Asynja varð síðan besti öldungur tegundar með sitt annað íslenska öldungameistarastig.
Að lokum mættum við einnig í fyrsta skiptið með ræktunar hóp í síðhærðum og lenti hann í 1.sæti með heiðursverðlaun ! En snögghærði ræktunarhópurinn okkar gerði gott betur, en eins og á síðustu sýningu, þá unnum við besta ræktunar hóp tegundar og fórum inní stórahringinn og kepptum við alla hina ræktunarhópana (í öllum tegundum) og varð ræktunar hópurinn okkar BESTI RÆKTUNARHÓPUR SÝNINGAR annað skiptið í röð !
Hér koma úrslit sýningarinnar:
Snögghærðir
Forynju Gizmo – SL 1.sæti hvolpar 6-9 mánaða BOB 2. besti hvolpur sýningar
Forynju Gleym Mér Ei – SL 2.sæti hvolpar 6-9 mánaða
Forynju Grace – SL 4.sæti hvolpar 6-9 mánaða
Forynju Gló – SL hvolpar 6-9 mánaða
Forynju Ég Er Kominn Heim – VG 2.sæti Ungliðafl.
Forynju Dropi – Exc 1.sæti m. meistaraefni Opinn fl : 2. besti rakki tegundar með vara norðurlanda
meistarastig.
Pablo vom Team Panoniansee - Exc 2. sæti m. meistara efni opinn fl : 3. besti rakki tegundar
Lider von Panoniansee - Vg Opinn fl.
Forynju Breki – Exc 2. sæti Vinnuhunda fl.
Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn Exc 3. sæti Vinnuhunda fl.
Ck‘s Team Joker - Exc 4.sæti Vinnuhunda fl.
Forynju Freyja – Exc 2. sæti m. meistaraefni ungliðafl.
Forynju Fönn – Exc 4.sæti ungliðafl.
Forynju Frekja – Exc ungliðafl.
Nana Primo Grande – VG unghund fl.
Forynju Bría – VG 3.sæti Opinn fl.
Forynju Bara Vesen – Ex 1. sæti Vinnuhunda fl.
Forynu Aska – VG 2. sæti Vinnuhunda fl.
Forynju Bestla – VG 3. sæti Vinnuhunda fl.
Vonziu‘s Asynja – Ex 1.sæti m. meistaraefni, Öldungafl. BOB Öldungur, íslenskt öldunga meisttarastig
Forynju Ræktun - Besti ræktunarhópur tegundar m. heiðursverðlaun : Besti ræktunarhópur sýningar BIS 1
Síðhærðir
Forynju Efi - Exc 2.sæti ungliðafl.
Forynju Ecco - Exc 3.sæti ungliðafl.
Forynju Ég Man Þig - VG ungliðafl.
Forynju Einstök - Exc 4.sæti ungliðafl.
Forynju Ræktun - Besti ræktunarhópur tegundar m. heiðursverðlaun