Gleðilegt nýtt ár.

Við hjá Forynjuræktun óskum öllum gleðilegs nýs árs og um leið viljum við þakka öllum vinum okkar og þá sérstaklega hvolpakaupendunum okkar fyrir árið sem er að líða.
Þrátt fyrir fordæmalausa og erfiða COVID tíma undanfarna mánuði áttum við hjá Forynjuræktun samt sem áður mjög gott ár. Nokkur Spora- og Hlýðnipróf voru haldin á árinu og gaman að segja frá þvi að 5 af 6 Schäferhundum sem luku sporaprófi í ár voru Forynju hundar, 6 hundurinn var frá vinum okkar í Gjóskuræktun.
8 Schäferhundar luku Hlýðniprófi í ár, 6 Forynju hundar og 2 innfluttir hundar í eigu Forynjuræktunar. Tveir Schäferhundar kláruðu OB-I eða Íslenskur Hlýðni 1 meistari og voru það félagarnir Forynju Aston og Ivan von Arlett.
Einungis ein sýning var haldin á árinu enn þar áttum við besta ungliða tegundar, allir hvolparnir okkar fengu Sérlega Lofandi (1.einkunn i hvolpafl.), fengum bæði Íslensku Meistarastigin í snögghærðum Schäfer og allir fullorðnu hundarnir sem við vorum með skráða á sýninguna röðuðu sér í sæti í besta rakka og bestu tík.
Enn og aftur þökkum við fyrir það gamla og förum full tilhlökkunar inn í nýtt ár.
Niðurstöður ársinns má sjá hér fyrir neðan.

Úrslit úr vinnuprófum 2020

Spor :
1. Forynju Breki 95 stig
2. Forynju Bestla 88 stig
3.-6. Forynju Ára 85 stig
3.-6. Forynju Bara Vesen 85 stig
3.-6. Forynju Bylur 85 stig

Hlýðni Brons
1. Forynju Bara Vesen 173.5 stig
2. Forynju Bestla 141.5
3. Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn 137 stig
4. Forynju Breki 97

Hlýðni I
1. ISJCh OB-I Ivan von Arlett 189.5 stig
2. OB-I Forynju Aston 185 stig

Hlýðni III
1. ISTrCh OB-II OB-I Forynju Aska 267.5 stig
2. OB-II OB-I Vonziu’s Asynja 254.5 stig

Úrslit af sýningum 2020

ISJCh OB-I Ivan von Arlett - Annar stigahæsti snögghærði rakki ársinns 2020
Welincha’s Izla fra Noregi - Önnur stigahæsta snögghærða tík ársinns 2020. Stigahæsti ungliði ársinns 2020
ISTrCh OB-II OB-I Forynju Aska - Þriðja stigahæsta snögghærða tík ársinns 2020.

Hvolpafl.
Forynju Breki - Besti hvolpur af gagnstæðukyni - BOS 6-9 mánaða.
Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn - 2 besti rakki 6-9 mánaða.
Forynju Bara Vesen - 2 besta tík 6-9 mánaða
Forynju Bestla - 3 besta tík 6-9 mánaða
Forynju Ára - 4 besta tík 6-9 mánaða

Previous
Previous

Ck's Team Joker

Next
Next

Gleðilega Hátíð !