Ck's Team Joker

Við fengum þær skemmtilegu fréttir að hann Joker okkar er frír af mjaðma- og olnbogalosi, en hann var myndaður með A mjaðmir og A olnboga ! Við erum alveg í skýjunum með þessar niðurstöður. En það er búið að mynda 4 hunda af 6 úr gotinu hans Jokers og eru þau öll A/A.
Hann Joker okkar er staddur út í Póllandi eins og er í þjálfun, þar sem er verið að þjálfa hann í spora-, hlýðni og bitvinnu og gengur þjálfunin hans mjög vel. Við fengum nokkrar myndir sendar af honum í bitvinnuþjálfun sem ég læt fylgja hérna með.

Previous
Previous

Mæðgurnar ISTrCh OB-II OB-I Forynju Aska og Forynju Bara Vesen

Next
Next

Gleðilegt nýtt ár.