Staðfest væntanlegt got: Forynju D-got !
Staðfestir hvolpar á leiðinni undan meisturunum ISTrCh OB-II OB-I Forynju Ösku og ISJCh Ivan von Arlett
ISTrCh OB-II OB-I Forynju Aska er úr fyrsta gotinu okkar og er undan tveimur glæsilegum innfluttum meisturum, þeim OB-II OB-I Vonziu’s Asynju og C.I.B ISCh RW-16 RW-15 SG1 Juwika Fitness. Aska sýndi það strax sem lítill hvolpur að hún ætlaði að erfa bæði fegurð og vinnusemi frá foreldrum sínum, en hún varð snemma 2. Besti hvolpur sýningar og aðeins 9 mánaða gömul kláraði hún bæði Hlýðni Brons og Spor 1 og hefur síðan þá raðað sér í efstu sæti um stigahæstu hunda landsins í vinnu í öllum flokkum og hefur alltaf átt 1. sæti í stigahæsta schäfer ársins í vinnu. Aska er í dag orðin bæði Hlýðni I og Hlýðni II meistari og hefur fengið 1.einkunn í Hlýðni III sem og íslenskur sporameistari, en hún er eini hundurinn á landinu sem getur státað sig af því. Ásamt þessum glæsilega vinnuárangri er Aska með eitt Íslenskt meistarastig, tvö vara-Alþjóðlegt meistarastig og er í augnablikinu 3. stigahæsta snögghærða schäfertík landsins.
Aska á eitt got fyrir og eru þau öll stórglæsileg, hvolparnir undan henni fengu allir Sérlega Lofandi á síðustu sýningu HRFÍ og röðuðu þau sér nánast í öll sætin. Einnig hafa tveir hvolpar undan henni, Forynju Bara Vesen og Forynju Bestla, lokið Hlýðni Brons og Forynju Bestla hefur einnig lokið Spori 1 aðeins 10 mánaða gömul.
ISJCh Ivan von Arlett er 2 ára innfluttur rakki frá Þýskalandi og kemur frá hinu heimsþekkta Arlett kennel. Ivan heillar alla uppúr skónum með sínu einstaka geðslagi, glæsilega byggingarlagi og einstöku vinnueðli. Ivan er stigahæsti hundur og stigahæsti schäfer landsins í Hlýðni brons árið 2019. Hann hefur hlotið fyrstu einkun og silfurmerki HRFÍ í Hlýðni 1 og einnig lauk hann Spor 1 með fyrstu einkun og kláraði árið í fyrra sem stigahæsti hundur ársins í Spor 1. Ivan er einnig Íslenskur ungliðameistari, er með 2 Íslenskt meistarastig og raðar sér reglulega í sæti um besta rakka tegundar og stigahæsta rakka ársins.
Ivan á fyrir eitt got hjá okkur, en dóttir hans hún Forynju Ára hefur orðið besti hvolpur tegundar á sýningu HRFÍ, einnig hefur hún lokið spori 1, það verður gaman að fylgjast með henni í framtíðinni.
Ivan eins og Aska er að sjálfsögðu frí af mjaðma og olnbogalosi og eru þau bæði mjög heilbrigð á bæði líkama og sál, sem er auðvitað það sem við leggjum alltaf upp með númer 1.2. og 3. í ræktun.
Er strax komin mikil spenna og eftirvænting eftir gotinu, enda leiðum við hér saman glæsilega sýningar og vinnuhunda af ættum sem sóst er eftir hvar sem er í heiminum. Ef fólk hefur áhuga á því að komast á biðlista er hægt að hafa samband á forynju@gmail.com