Hlýðnipróf 16. júní og Sporapróf 18. júní
Vikan er búin að vera ansi góð hjá okkur í Forynju Ræktun !
Þriðjudaginn 18 júní var haldið annað hlýðnipróf ársinns á vegum vinnuhundadeildar HRFÍ, 8 hundar voru skráðir í prófið og áttum við 4 af þeim.
Forynju Bestla sem er einungis 10 mánaða gömul tók þátt í fyrsta sinn í Hlýðni Brons með eigandanum sínum henni Berglindi sem er ný orðin 17 ára !
Forynju Bestla, sem gengur undir nafinu Þoka dagsdaglega, fékk 1.sætið með 141.5 stig og Bronsmerkið í frumraun sinni í hlýðniprófi ! Geri aðrir betur !
Forynju Aston (Váli) og Heiðrún Huld tóku þátt í Hlýðni I og áttu þau glæsilegt próf. Enduðu þau í 1.sæti með 183 stig og 1.einkunn ! Þetta var í þriðja skiptið sem Váli og Heiðrún fá 1.einkunn í Hlýðni I og er hann Váli þar með kominn með titilinn OB-I (Íslenskur hlýðni I meistari ).
Ivan var einnig skráður í Hlýðni I og náði hann 2.sæti og 2.einkunn að þessu sinni.
Vonziu’s Asynja mætti svaka hress í Hlýðni III eftir meira en árs pásu, stóð hún sig svakalega vel í prófinu en hún náði 1.sætinu með 254,5 stig og 2 einkunn. Hana vantaði einungis 1,5 stig upp í 1.einkunn sem hefði gefið henni titilinn ISOBCh eða Íslenskur Hlýðnimeistari. enn við mætum bara aftur seinna og klárum þetta.
Fyrsta sporapróf ársinns var síðan haldið 18. júní
Þar voru án efa stjörnur prófsinns Berglind með Forynju Bestlu og Snærún Ynja með Forynju Áru.
Forynju Bestla og Berglind náðu fyrsta sætinu með 88 stig af 100 mögulegum og Forynju Ára og Snærún Ynja náðu öðru sæti með 85 stig af 100 mögulegum !
Glæsilegur árangur hjá þessum ungu stelpum með ungu hundana sína enn og aftur geri aðrir betur !
Einnig varð Á gotið okkar 1 árs í gær og hún Ára hélt uppá það með trompi með því að skella sér í sporapróf !