Forynju Bara Vesen
Þessi 15 mánaða gamli gullmoli er stigahæsti hundurinn (Allar tegundir) í Hlýðni Brons fyrir árið 2020.
Hún náði þeim magnaða árangri í fyrsta prófinu sínu einungis 9 mánaða gömul að ná 173,5 stigum af 180 mögulegum. Hún er einnig stigahæsti Schaferinn frá upphafi í Hlýðni Brons enn hundurinn sem hún stal titlinum af er amma hennar Vesen hún OB-II OB-I Vonziu’s Asynja, en Ynja hafði verið stigahæsti schafer hundurinn í Hlýðni Brons frá 2014.
Enn hún Vesen er ekki bara þrusu dugleg og klár heldur er hún einnig gullfalleg eins og má sjá á myndunum hérna fyrir neðan.
M: ISTrCh OB-II OB-I Forynju Aska
F: RW-19 SG1 SG61 Lider von Panoniansee