Ck's Team Joker
Fengum sendar þessar myndir af honum Ck's Team Joker í IGP þjálfun. Það stóð til að fá hann Joker heim til Íslands í ár, en Covid-19 hefur heldur betur ruglað öllum plönum, í staðinn ákváðum við að senda hann Joker í þjálfun og verður hann þar til seint á næsta ári.
Verður gaman þegar við getum loksinns fengið þennan flotta gaur heim á klakann.