Síðasta sýning ársins 2019

Þá er seinustu sýningu ársinns lokið, en um helgina 23-24 nóv var haldin Winter Wonderland sýning HRFÍ.
Við vorum með nokkra hunda skráða að þessu sinni og gekk þeim öllum vel, en þar má helst segja frá henni Forynju Áru, sem var að keppa í fyrsta sinn á sýningu á vegum HRFÍ, en hún endaði sem Besti hvolpur tegundar 3-6 mánaða !
Prinsinn okkar hann Lider von Panoniansee varð annar besti rakki tegundar og endar hann árið sem annar stigahæsti hundur schäferdeildarinnar þrátt fyrir að hafa einungis tekið þátt á 4 sýningum af 7. Einnig endaði hvolpur undan honum hún Gjósku QT sem 3 besti hvolpur sýningar !

Helstu úrslit af sýningunni voru þessi:

Forynju Ára : Besti hvolpur tegundar 3-6 mánaða.
Lider von Panoniansee : Opinn fl. excellent 1.sæti með meistaraefni 2.besti rakki tegundar
Ivan von Arlett : Vinnuhunda fl. excellent 2.sæti með meistaraefni
Vonziu’s Asynja : Opinn fl. very good
Forynju Aska : Vinnuhunda fl. excellent 1.sæti með meistaraefni.

Það var lítið tekið af myndum en hérna eru myndir af Forynju Áru með eigandanum sínum henni Snærúnu eftir sýningnuna :)


Previous
Previous

Schäferganga

Next
Next

Árangur í vinnuprófum 2019