Árangur í vinnuprófum 2019
Núna þegar öllum prófum árinns er lokið þá er gaman að renna yfir árangur hundana okkar í vinnuprófum á vegum Vinnuhundadeildar HRFÍ yfir árið 2019.
Forynju Aska kláraði bæði Sporameistara titilinn sinn og Hlýðni II nafnbótina, Ivan von Arlett er stigahæsti hundurinn í bæði Spori I og Hlýðni Brons og Forynju Aston er annar stigahæsti hundurinn í Hlýðni Brons.
Aska gerði gott betur og er hún stigahæsti Sporahundur VHD 2019 og er hún þriðji stigahæsti Hlýðnihundur ársinns þrátt fyrir að hafa bara náð að taka þátt í þremur prófum yfir árið.
Vonziu’s Asynja er síðan fjórði stigahæsti Hlýðnihundur árinns þrátt fyrir að hafa bara tekið þátt í tveimur prófum í ár.
Hér fyrir neðan koma svo niðurstöðurnar !
Hlýðni :
Hlýðni Brons
1. sæti með 163.5 stig af 180 mögulegum með Bronsmerkið (Vinnuhundadeildin, allar tegundir)
ISJCh Ivan von Arlett
2. sæti með 162,5 stig af 180 mögulegum með Bronsmerkið (Vinnuhundadeildin allar tegundir)
Forynju Aston
Hlýðni I
2. sæti með 191 stig af 200 mögulegum með silfurmerkið (Schäferdeildin)
Forynju Aston
3. sæti með 185 stig af 200 mögulegum með silfurmerkið (Schäferdeildin)
ISJCh Ivan von Arlett
Hlýðni II
1. sæti með 194,5 stig af 200 mögulegum með Gullmerkið (Vinnuhundadeildin, allar tegundir)
ISTrCh OB-II OB-I Forynju Aska
3. sæti með 177 stig af 200 mögulegum (Vinnuhundadeildin, allar tegundir)
ISTrCh OB-II OB-I Forynju Aska
Hlýðni III
1. sæti með 280 stig af 320 mögulegum (Schäferdeildin)
OB-II OB-I Vonziu’s Asynja
Spor:
Spor I
1. sæti með 90 stig af 100 mögulegum (Vinnuhundadeildin, allar tegundir)
ISJCh Ivan von Arlett
Spor III
1. sæti með 94 stig af 100 mögulegum (Schäferdeildin)
ISTrCh OB-II OB-I Forynju Aska