Hlýðnipróf 30. júní
Fjórða Hlýðnipróf árins var haldið 30. júní síðastliðinn og skelltum við okkur með hana OB-II OB-I Forynju Bara Vesen í prófið.
Vesen tók þátt í Hlýðni II og landaði 1.sætinu með 170 stig af 200 mögulegum og 1.einkunn.
Dómari Silja Unnarsdóttir
Prófstjóri Þórhildur Bjartmarz
Með fylgjandi myndir eru teknar af henni Vesen á námskeiði hjá norska hundaþjálfaranum Hilde.
Sporapróf 14. júní
Annað sporapróf árins var haldið að kvöldi 14 júní við Nesjavallarveg. Við hjá Forynju ræktun áttum auðvita frábæra fulltrúa í prófinu og áttum við 1. sætið í öllum þeim flokkunum sem prófað var í.
Forynju Bría og Karolína eigandi hennar voru í 1.sætinu með 90 stig og 1.einkunn í Spor I, en þetta var frumraun þeirra beggja í spori. Þar með hefur hún Bría lokið öllum kröfum til að geta keppt í vinnuhunda fl. á sýningum HRFÍ. Frábær árangur hjá þeim !
OB-II OB-I Forynju Bara Vesen tók sína frumraun í Spor II og landaði 1.sætinu með 90 stig og 1.einkunn. En sporaslóðin er 1.000 m, 5 millihutir og einn endahlutur, og þáttakandi hefur 35 min til að klára sporið. Vesen skilaði öllum 6 hlutunum og kláraði sporaslóðina á 12 mín !
Stórstjarna kvöldsins var samt sem áður hún ISObCh ISTrCh OB-III OB-II OB-I Forynju Aska, en hún var skráð í Spor Elite, Aska kláraði prófið villulaust, skilaði öllum hlutum og kláraði sporið á einungis 22 mín ! En hún Aska uppskar 1.sætið með 100 stig (af 100 mögulegum) og 1.einkunn ! Þar með hefur hún Aska fengið annan titil í safnið eða ISEliteTrCh !
En hún Aska er fyrsti Schaferhundurinn til að ná þessum árangri og annar hundurinn á Íslandi!
Tekið úr sporareglum fyrir Spor Elite: Sporaleggjari leggur u.þ.b. 1500 metra langa sporaslóð (með ,,Finna spor“ æfingunni). Slóðin á að vera 100-120 mínútna gömul og skal innihalda sjö til átta vinkla, þar af tvo 30°, níu millihluti og endahlut. Sporaslóðin skal innihalda krossspor sem lagt er af öðrum sporleggjara en lagði hinn hluta sporsins. Hámarkstími til að ljúka prófi eru 55 mínútur. Tímataka hefst við upphafspunkt eftir merki frá dómara/prófstjóra.
Alþjóðleg og Reykjavík Winner sýning 12. júní
Alþjóðleg og Reykjavík Winner sýning HRFÍ var haldin um helgina og áttum við hjá Forynju ræktun góðu gengi að fagna. Við áttum þó nokkra hvolpa sem voru að stíga sín fyrstu skref í sýningarhringum ásamt eigendum sínum og stóðu þau sig öll frábærlega !
Við áttum einnig þó nokkra hunda í sætum í besta rakka og bestu tík og hunda sem unnu sína flokka ásamt BOB og BOS hvolpum og BOS ungliða, en það sem stóð upp úr eftir daginn var ræktunarhópurinn okkar, en ræktunarhópurinn okkar vann Besta ræktunarhóp tegundar af 4 hópum og það hætti ekki þar við mættum með glæsilega hópinn okkar í stórahringinn og unnum við BEST IN SHOW BREEDERS GROUP !
Hér koma úrslit sýningarinnar:
Síðhærðir
Forynju Ég Man Þig : SL -1.sæti Besti hvolpur tegundar 6-9 mánaða
Forynju Ecco : Exc, 1.sæti ungliða fl. meistaraefni, 2. Besti rakki tegundar, BOS Ungliði, Íslenskt meistarastig, Ungliða meistarastig
Forynju Efi : Vg, 2.sæti ungliða fl.
Forynju Einstök Exc, 2.sæti ungliða fl. meistaraefni, vara-Ungliða meistarastig.
Snögghærðir
Forynju Gizmo: SL - 4 sæti. y.hv fl.
Forynju Gló: SL- 2.sæti. y.hv fl.
Forynju Grace: L y.hv fl.
Forynju Gleym Mér Ei: L y.hv fl.
Forynju Ég Er Kominn Heim : SL - 1.sæti Besti hvolpur tegundar af gagnstæðukyni 6-9 mánaða.
Forynju Frekja : SL - 2.sæti e.hv fl.
Forynju Frökk : SL - 3.sæti e.hv fl.
Forynju Freyja : SL - 4.sæti e.hv fl.
Forynju Dropi : Exc, 1.sæti unghund fl. meistaraefni
Pablo vom Team Panoniansee - Exc, 1. sæti opinn fl. meistaraefni, 2. Besti rakki tegundar, Íslenskt meistarastig, vara-Alþjóðlegt meistarastig
RW-19 Lider von Panoniansee - Exc, 4. sæti opinn fl. meistaraefni, 3. Besti rakki tegundar
Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn : Exc, 1.sæti vinnuhunda fl. meistaraefni, 4. Besti rakki tegundar
Forynju Breki : Exc 2.sæti vinnuhunda fl.
Ck’s Team Joker : Exc 3.sæti vinnuhunda fl.
Forynju Eymd: Exc, ungliða fl.
Forynju DIva: Exc, unghunda fl.
Forynju Bría: Exc, opinn fl.
Forynju Ára: Exc, 1. sæti vinnuhunda fl, meistaraefni.
Forynju Aska Exc, 2.. sæti vinnuhunda fl.
Forynju Bestla: Vg. 3. sæti vinnuhunda fl.
Forynju Bara Vesen :VG. 4. sæti vinnuhunda fl.
Vonziu’s Asynja: Exc, 1.sæti öldunga fl, meistara efni. 4. Besta tík tegundar, Besti öldungur tegundar, Öldunga meistarastig
Forynu Ræktun : Heiðursverðlaun, 1.sæti. Besti ræktunarhópur tegundar, Besti ræktunarhópur Sýningar, BIS
Staðfest væntanlegt got - Forynju H-Got
Forynju ræktun kynnir með miklu stolti væntanlegt H-got í lok júní 2022
í lok júní er væntanlegt í heiminn ótrúlega spennandi got undan fallegu innfluttu hundunum okkar Izlu og Joker. Mikil eftirvænting er eftir gotinu, enda margra ára vinna og pælingar á bak við þessa pörun.
Izlu festum við kaup á eftir að við fengum hálfbróður hennar multich Welincha’s Whimpy tímabundið til Íslands. Whims vann hér besti hundur sýningar en því miður fengum við ekki afkvæmi undan honum. Ræktendurnir hans, vinir okkar Leif og Ragnhild Belgen voru með spennandi got undan mömmu hans og glæsi rakkanum VA1 Falkoens Vasko og höfðum við samband við þau og pöntuðum okkur tík úr gotinu.
Við fengum Izlu til okkar í lok árs 2019 og hefur hún átt góðu gengi að fagna síðan þá. Hún hefur 3. sinnum mætt á hundasýningu hérlendis og í tvö af þeim skiptum hefur hún orðið önnur besta tík tegundar. Hún er með 1. ungliða meistarastig, 1. íslenskt meistarastig, varð besti ungliði tegundar og stigahæsti ungliði schaferdeildarinnar árið 2020 ásamt því að hafa hlotið bronsmerki HRFÍ í hlýðni.
Izla á fyrir 1 got hja okkur, E-gotið, en þau eru virkilega fallegir og geðgóðir einstaklingar sem strax eru farin að gera góða hluti bæði á sýningum og í vinnu, á íslandi sem og erlendis.
BH-VT IGP1 KKl1 Ck’s Team Joker er nýjasta viðbótin í litlu ræktunina okkar, en við keyptum hann 4 vikna gamlan af Caner Kuzman vini okkar í Tyrklandi. Hann valdi hann af kostgæfni fyrir okkur, en um leið og hann sagði okkur frá þessu væntanlega goti hjá sér þá var staðfest pöntun á rakka úr því. Mamma hans Jokers heitir Serap vom Rumbachtal, en Serap varð V6 á siegershow og var heiðruð fyrir bestu bitvinnu af öllum tíkum á sýningunni. Pabbi hans Jokers er svo hinn heimsfrægi VA1 Willy vom Kuckucksland, en hann sigraði siegershow í þýskalandi 3. sinnum, fyrst ungliða flokkinn árið 2014 og svo vinnuhundaflokkinn árið 2018 og 2019, en samtals hefur hann sigrað sinn flokk á 10 siegershow sýningum um alla evrópu. Ásamt þessum frábæra árangri hefur hann gefið af sér glæsileg afkvæmi sem feta í fótspor föður síns.
Gotið sem Joker er úr er hefur skarað fram úr á allan hátt, 6 hvolpar voru í gotinu og hafa þau öll verið mynduð A/A mjaðmir og olnbogar og hafa 4 þeirra lokið vinnuprófum og fengið ræktunardóminn Kkl1.
Joker kom til okkar fyrir nokkrum mánuðum og hefur strax heillað alla sem hann hittir uppúr skónum. Hann er geðgóður og vinnusamur hundur með einstaklega jafna byggingu og gríðarlegar hreyfingar. Það verður mjög gaman að fylgjast með honum í ræktun hjá okkur í framtíðinni.
Gotið undan þeim er væntanlegt í heiminn um 26 júní og verða þessir litlu einstaklingar tilbúnir að fara á sín framtíðar heimili í lok ágúst. Hvolparnir verða afhentir heilsufarsskoðaðir, bólusettir, örmerktir, skráðir hjá Dýraauðkenni, ættbókarfærðir hjá HRFÍ og með veglegan startpakka frá eukanuba.
Hlýðnipróf Vinnuhundadeildar HRFÍ 26.05.2022
Við hjá Forynju ræktun áttum 4 hunda af 10 sem voru skráðir í hlýðniprófið í gær og áttum við 1.sætið í öllum flokkum sem keppt var í !
Vesen fékk sína þriðju 1.einkunn í Hlýðni II og hefur hún þar með hlotið titilinn OB-II. En Vesen er þar með þriðja í sínum ættlið sem nær þessum árangri, en einungis tveir aðrir schaferhundar á Íslandi hafa náð þessum árangri og er það amma hennar Vesen hún ISObCh OB-III OB-II OB-I Vonziu’s Asynja og síðan mamma hennar Vesen hún ISObCh ISTrCh OB-III OB-II OB-I Forynju Aska
Hlýðni Brons
1. sæti með 139 stig og Bronsmerki HRFÍ - Forynju Dropi (Askur) og Björgvin Ingvar Ormarsson
2. sæti með 135 stig – Forynju Einstök
Hlýðni I
Með 146 stig II. einkunn – Forynju Bestla (Þoka) og Maria Jonsdottir
Hlýðni II
1. sæti með 170 stig I. einkunn - Forynju Bara Vesen
Fyrsta sporapróf árins 2022.
Fyrsta sporapróf árins var haldið fimmudaginn 18 maí við Guðmundarlund í Kópavogi.
Dómari var Albert Steingrímsson og prófstjóri var Eva Kristinsdóttir.
En auðvita áttum við hjá Forynju ræktun frábæra fulltrúa í prófinu, en hún Forynju Bestla mætti með eigandanum sínum henni Maríu í Spor 1 og landaði hún 1.sætinu með 1.einkunn með heil 97 stig af 100 mögulegum, nánast fullt hús stiga, alveg hreint út sagt frábær árangur !
Forynju Aska mætti síðan í fyrsta skiptið í Spor Elite og lauk hún prófinu með 72 stig eða 3.einkunn þar sem hún núllaði í "rammanum" í byrjun sem tapaði okkur 20 stigum en skilaði inn 8 millihlutum (af 9) og endahluti. Þrátt fyrir 3.einkunn þá er Aska fyrsti hundurinn til að hljóta viðurkennda einkunn í Spor Elite í fyrstu tilraun og er hún annar hundurinn á íslandi til að fá viðurkennda einkunn í Spor Elite.
Forynju Einstök
Við skelltum okkur með hana Einstök (ásamt fleirum) í smá ljósmynda session út á landi síðustu helgi.
Það sem það er gaman að taka myndir af þessum mola, en hún Einstök varð 10 mánaða í dag, 11.05.
En hún er ekki bara gullfalleg heldur er hún líka yndislega góð, klár og dugleg en hún er yngsti síðhærði schaferinn til að ljúka Hlýðni Brons aðeins ný orðin 9 mánaða þegar hún lauk því og það með góðum árangri eða með 159 stig af 180 mögulegum.
Forynju Einstök
F: RW-19 SG1 SG61 Lider von Panoniansee
M: Welincha’s Izla Fra Noregi
Hlýðnipróf á sumardaginn fyrsta.
Í dag var haldið hlýðnipróf á vegum Vinnuhundadeildar HRFÍ. Mjög góð skráning var í prófið eða 15 hundar þar af voru 4 Forynju hundar að taka þátt. Virkilega gaman að sjá hvað fólk er duglegt með þessa flottu vinnu tegund sem við eigum.
Allir hundarnir okkar sem tóku þátt náðu einkun í sínum prófum og voru sér og tegundinni til sóma. Úrslit voru eftirfarandi
Hlýðni Brons :
2. sæti Forynju Einstök - 159 stig og Bronsmerkið
4. sæti Forynju Dropi - 107 stig
Hlýðni I :
4. sæti Forynju Bestla - 171 stig, 1.einkun og Silfurmerkið
Hlýðni II :
1. sæti OB-I Forynju Bara Vesen - 184 stig, 1.einkunn og Gullmerkið
Til hamingju allir sem voru í prófi og gleðilegt sumar !
Páskahvolpahittingur.
Á föstudaginn langa þá skelltum við okkur í hitting með hvolpana okkar og var heldur betur góð mæting þrátt fyrir að veðrið hafi aðeins verið að stríða okkur.
Hérna eru nokkrar myndir af glæsilegu hvolpunum okkar frá hittingnum.
Vinnuhundur ársins 2021 !
OB-I Forynju Bara Vesen
M: SObCh ISTrCh OB-III OB-II OB-I Forynju Aska
F: RW-19 SG1 SG61 Lider von Panoniansee