Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

Ársfundur og heiðrun Vinnuhundadeildar HRFÍ

Ársfundur og heiðrun Vinnuhundadeildar HRFÍ var haldin í gær, 12 apríl. Þar voru stigahæstu hundar, óháð tegund, heiðraðir fyrir árangur í vinnuprófum á árinu 2021. 19 verðlaun voru veitt og þarf af voru 10 verðlaun sem Schafer hundar hlutu fyrir frábæran árangur. Í heildina voru þetta fjórir Schafer hundar sem hlutu þessi tíu verðlaun en gaman er að segja frá því að þrjú af þessum fjórum eru gotsyskini og fjórði hundurinn er mamma þeirra og koma þau öll frá okkur úr Forynju ræktun, en um ræðir er Forynju Aska og afkvæmin hennar þrjú, Forynju Bara Vesen. Bría og Brjálaði Fenris Úlfurinn.

En hún Vesen okkar, OB-I Forynju Bara Vesen, kláraði árið sem Stigahæsti Hlýðnihundur árins og Stigahæsti Sporahundur árins, geri aðrir betur !

Hér fyrir neðan má sjá niðurstöðurnar

Hlýðni Brons

Forynju Bría - 1. sæti 175 stig

Hlýðni I

OB-I Forynju Bara Vesen - 1. sæti 196,5 stig
Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn - 3. sæti 192 stig

Hlýðni II

OB-I Forynju Bara Vesen - 3. sæti 162,5 stig

Spor I

OB-I Forynju Bara Vesen - 1. sæti 90. stig
OB-I Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn - 2. sæti 85 stig.

Stigahæsti Hlýðnihundur árins 2021

1. sæti OB-I Forynju Bara Vesen
3. sæti ISTrCh ISObCh OB-I OB-II OB-III Forynju Aska

Stigahæsti Sporahundur árins 2021

1. sæti OB-I Forynju Bara Vesen
2. sæti OB-I Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn

Read More
Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

Hvolpahittingur 20.mars

Góða veðrið í gær var heldur betur nýtt og tókum við hvolpahitting með hvolpum úr G, F og É gotunum okkar.
Það voru ekki margar myndir teknar þar sem að það gleymdist að hlaða vélina fyrir hittinginn og varð hún fljótt batteríslaus. En það skemmmtu allir sér konunglega, en það er svo frábært að fá að fylgjast með hvolpunum stækka og dafna hjá nýju eigendunum sínum.

Read More
Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

Forynju Ezzla í Noregi

Vinkona okkar í Noregi hún Toril Bjerke hafði samband við okkur þegar að ljóst var að væntanlegt got væri undan Izlu og Lider, en Toril passaði þau bæði fyrir okkur í Noregi áður en að þau mættu til Íslands. Toril vildi endilega fá hvolp undan þessu flotta pari og var það því ákveðið að hún fengi efnilegustu tíkina enda stefnan sett á sýningar útí hinum stóra heimi.

Ezzla ásamt systkinum sínum 8, fæddist 11. júlí 2021 og kom Toril til landsins þegar að þau voru 7 vikna og í sameiningu völdum við réttu tíkina fyrir hana.

Ezzla mætti á sýna fyrstu sýningu á Íslandi í nóvember í fyrra og stóð þar uppi sem sigurvegari, Besti hvolpur tegundar. Hún hélt svo utan í janúar og hefur síðan þá verið í mikilli þjálfun, bæði fyrir vinnu og sýningar og sýnir glæsilega takta á öllum sviðum. Ásamt því að vera yndislegur heimilishundur sem bræðir alla sem hún kynnist.

Um síðast liðna helgi mætti Ezzla svo á sína fyrstu sýningu í Noregi. Þar endurtók hún leikinn frá því á Íslandi og varð Besti hvolpur tegundar 6-9 mánaða. Fékk hún glæsilega umsögn frá Dannska schafer dómaranum Pelle Lundkvist og heillaði bæði hann og áhorfendur. Það verður gaman að fylgjast með þessari glæsilegu tík og hennar björtu framtíð í Noregi.

Read More
Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

Norðurljósasýning 5.-6. mars 2022

Fyrsta sýning ársins var haldin helgina 5-6 mars og var Schaferinn sýndur sunnudaginn 6. mars.
Við hjá Forynju ræktun áttum góðu gengi að fagna eins og vanalega.
Við mættum með sjö hvolpa í heildina og fengu þeir allir einkunina Sérlega Lofandi og áttum við Besta Hvolp Tegundar í bæði snögghærðum og síðhærðum.
En hún Forynju Frekja sem er ný orðin 4 mánaða og eigandi hennar Karolína létu það ekki nægja að vinna bara tegundina heldur fóru þær saman inní stóra hringinn og lönduðu 1.sætinu í keppninni um besta ungviði sýningar (4-6 mánaða).
Velgengnin hélt áfram í flokki fullorðna og varð hann Pablo okkar 2.besti rakki tegundar og með sitt fyrsta Íslenska meistarastig og OB-I Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn “FennI” var eini Íslands ræktaði rakkinn í snöggu sem fékk meistaraefni eða ck á sýningunni og endaði hann sem 3.besti rakki tegundar.
OB-I Forynju Bara Vesen endaði sem 3.besta tík tegundar og hún ISObCh OB-III OB-II OB-I Vonziu’s Asynja endaði sem besti öldungur tegundar.

Síðhærðir Hvolpar
Forynju Ég Man Þig - 1. sæti m. SL hvolpa fl. 4-6 mánaða - Besti hvolpur tegundar Síðhærðir
Forynju Ecco - 2. sæti m. SL hvolpa fl. 6-9 mánaða Síðhærðir
Forynju Efi - 3. sæti m. SL hvolpa fl. 6-9 mánaða Síðhærðir
Forynju Einstök 2. sæti m. SL hvolpa fl. 6-9 mánaða Síðhærðir

Snögghærðir Hvolpar
Forynju Frekja - 1. sæti m. SL hvolpa fl. 4-6 mánaða - Besti hvolpur tegundar og Besti hvolpur sýningar
Forynju Fönn - 2. sæti m. SL hvolpa fl. 4-6 mánaða
Forynju Freyja - 3.sæti m. SL hvolpa fl. 4-6 mánaða

Snögghærðir Rakkar
Forynju Dropi - 1. sæti m. Excellent í Unghundafl.
Forynju Derringur - 3 sæti m. very good í Unghundfl.
Pablo vom Team Panoniansee - 1. sæti m. Excellent, Meistaraefni í opnum fl. 2. besti rakki tegundar m. Íslenskt meistarastig.
Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn - 1. sæti m. Excellent, Meistaraefni í Vinnuhundfl. 3. besti rakki tegundar.
Forynju Breki - 2. sæti m. Excellent í Vinnuhundafl.

Snögghærðar Tíkur
Welincha's Izla Fra Noregi - 2.sæti m. excellent í opnum fl.
Forynju Brynja - 3.sæti m. very good í opnum fl.
Forynju Bara Vesen - 1. sæti m. Excellent, Meistaraefni í Vinnuhundfl. 3. besta tík tegundar.
Forynju Ára - 2. sæti m. Excellent í Vinnuhundfl.
Forynju Bestla - 3. sæti m. very good í Vinnuhundfl.
Vonziu's Asynja - 1. sæti Excellent í Öldungafl. Besti Öldungur tegundar.

Read More
Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

Snjó gaman hjá É og F hvolpunum okkar

Við vorum með smá hitting hjá hvolpunum okkar sem eru ný orðnir 3 mánaða og skemmtu þeir sér konunglega í snjónum og það munu allir sofa rosalega vært í nótt eftir rosalega skemmtilegan dag.

Read More
Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

Forynju G-got 6 vikna

Hvolparnir okkar undan ISObCh ISTrCh OB-III OB-II OB-I Forynju Ösku og Pablo vom Team Panoniansee urðu 6 vikna í vikunni.
Það er komið svaka stuð í þá og bruna þeir út um allt, við skelltum okkur út með myndavélina í snjóinn í dag og skemmtu hvolparnir sér konunglega eins og sést á myndunum.

Read More
Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

Loksins, loksins !

Eftir alla þessa bið þá eru þau loksins komin til okkar.
Við kynnum með miklu stolti nýjustu viðbæturnar okkar :

IGP1 KKl1 Ck’s Team Joker
HD: A
ED: A
Faðir: 2x VA1BSZS VA1 (IT) BH AD Kkl1 IPO3 Willy vom Kuckucksland
Móðir: V6 BSZS BH AD Kkl1 IGP3 Serap vom Rumbachtal

og

Nana Primo Grande
Faðir : SG19 BSZS BH AD Kkl1 IGP1 Rio dei Colli Storici
Móðir : SG BH-VT IGP1 Heroina Primo Grande

Read More
Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

Forynju G-got 4 vikna.

VIð skelltum okkur út með hvolpana í smá ævintýraferð og skemmtu þeir sér alveg konunglega í góða veðrinu, enda er heimurinn risa stór og margt að skoða !

Read More
Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

Gleðilegt nýtt ár !

Um leið og við viljum óska öllum gleðilegs nýs árs og þakka fyrir samfylgdina á árinu sem leið þá langar okkur að kynna nýjasta gotið okkar Forynju G-got !
En þann 16 desember síðast liðinn þá fæddust hjá okkur 9 hvolpar, 7 tíkur og 2 rakkar, undan stórstjórnunni okkar henni ISObCh ISTrCh OB-III OB-II OB-I Forynju Ösku og nýjasta innflutta rakkanum okkar, hinum stór glæsilega, Pablo vom Team Panoniansee. Hvolparnir stækka og dafna, eru allir búnir að opna augun og eru þeir farnir að brölta út um allt. Við erum alveg í skýjunum með þessa gullfallegu hvolpa.

Read More
Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

Hittingur hjá E-gotinu okkar á annan í jólum.

Hvolparnir okkar úr E-gotinu okkar skemmtu sér konunglega í dag, fórum í góðan göngu túr saman þar sem við fundum fullt af pollum og sprænum til að sulla í !

Read More

Instagram:

Einnig er hægt að fylgja okkur á Instagram : Forynju