Forynju É-got 7 vikna
Nú fer að líða að því að hvolparnir úr É-gotinu fari að fara á nýju heimilin sín, en þeir urðu 7 vikna síðast liðinn sunnudag og nýjir eigendur bíða spenntir eftir að fá jólapakkana sín heim um jólin.
Þar sem verðið hefur verið rosalega gott síðast liðna daga, þrátt fyrir að það sé desember, þá höfum við náð að gera ýmislegt með hvolpunum okkar úti, skelltum okkur meðal annars með þá upp í heiði og smelltum nokkrum myndum af þeim.
Forynju F- got 5 vikna
Fallegu Bríu og Ivans hvolparnir okkar eru orðnir rúmlega 5 vikna og það er ekkert smá gaman að fylgjast með þessum gröllurum !
Forynju F-got 4 vikna.
Hvolparnir hennar Bríu okkar stækka dafna en þeir urðu 4 vikna á síðastliðinn þriðjudag, við nýttum daginn í að fara með hvolpana út í góða veðrið og smella nokkrum myndum af þeim í snjónum og sólinni.
Forynju É-got 4 vikna hnoðrar
Hvolparnir undan ISObCh OB-III OB-II OB-I Vonziu’s Asynja og Pablo vom Team Panoniansee urðu 4 vikna síðustu helgi og er orðnir svakalegir stuðboltar og þjóta út um allt hús og skelltum við okkur aðeins með þá út í gær í snjónn til að taka myndir af þeim, skemmtu allir sér konunglega.
Hér má sjá þessa litlu hnoðra leika sér í snjónum.
Winter Wonderland Sýning HRFÍ 27-28 Nóv.
Helgina 27-28 nóv var haldin Winter Wonderland sýning HRFÍ, en þetta var stærsta og fjölmennasta sýning HRFÍ hingað til, það var einnig met skráning í Schafernum og gekk okkur hjá Forynju ræktun vel að vanda.
Niðurstöðurnar má sjá hér fyrir neðan
Snögghærðir
Rakkar :
Forynju Dropi - Ungliðaflokkur : 1.sæti m. Excellent , Meistaraefni og Ungliðameistarastig - BoS Ungliði
Forynju Derringur - Ungliðaflokkur : Good
RW-19 Lider von Panoniansee - Opinn fl : 1.sæti m. Excellent, Meistaraefni, Íslensk meistarastig og vara Norðurlandameistarastig - 2. besti rakki tegundar.
Pablo vom Team Panoniansee - Opinn fl : 2.sæti m. Excellent og Meistaraefni.
OB-I Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn - Vinnuhundafl : 1.sæti m. Excellent og Meistaraefni
Forynju Breki - Vinnuhundafl : 3. sæti m. Very good
ISCh ISjCh OB-I Ivan von Arlett - Meistarafl : 3.sæti m. Excellent og Meistaraefni - 4. besti rakki tegundar.
Tíkur :
Forynju Ezzla - Hvolpafl 3-6 mánaða: 1.sæti m. Sérlega Lofandi - Besti hvolpur tegundar BOB
Forynju Eilífð - Hvolpafl 3-6 mánaða: 2.sæti m. Lofandi
Forynju Diva - Ungliðaflokkur : Very good
Welincha’s Izla Fra Noregi - Opinn fl: 1.sæti m. Excellent og meistaraefni og vara Norðurlandameistarastig - 2. besta tík tegundar
Forynju Ára - Opinn fl : 4.sæti m. Excellent
OB-I Forynju Bara Vesen - Vinnuhundafl : 1.sæti m. Excellent
Forynju Bestla - Vinnuhundafl: 2. sæti m. Very Good
Forynju Ræktunarhópur : 2. sæti m. Heiðursverðlaun
Afkvæmahópur - Lider von Panoniansee : Heiðursverðlaun - Besti Afkvæmahópur tegundar - 3. besti afkvæmahópur sýningar
Síðhærðir
Rakkar:
Forynju Ecco - Hvolpafl 3-6 mánaða : 2. sæti m. Sérlega Lofandi
Forynju É-got 3 vikna
Hvolparnir okkar úr É-gotinu stækka og dafna og eru hinir mestu molar, þeir urðu 3 vikna í gær og smelltum við nokkrum myndum af þeim.
Við erum einnig búin að velja ættbókarnöfnin á þá. Þar sem að þetta er É-got þá ákváðum við að hafa Íslensk dægurlög sem þemað og nöfnin eru eftirfarandi:
Forynju Ég Man Þig
Forynju Ég Er Kominn Heim
Forynju Ég Mun Bíða Þín
M: ISObCh OB-III OB-II OB-I Vonziu’s Asynja
F: Pablo vom Team Panoniansee
Hér má sjá litlu molana
Forynju Ég Er Kominn Heim.
Forynju Ég Man Þig (Síðhærður)
Forynju Ég mun Bíða þín
Forynju F-got
Smelltum nokkrum myndum af molunum hennar Bríu í gær, en þeir eru orðnir 13 daga gamlir og allir búnir að opna augun og farið að færast smá líf í hópinn . Það sem þessir hvolpar eru mikil krútt !
Forynju É-got
Í lok Október fæddust 3 gull fallegir rakkar undan Ynju okkar og nýju vonarstjörnunni Pablo vom Team Panoniansee. Þeir njóta sín extra vel á mjólkurbarnum, enda margir spenar í boði fyrir hvern og einn. Eru þeir allir gullfallegir og virðast ætla að standast allar væntingar sem við gerðum til þessarar pörunar.
Ynja á fyrir 6 hvolpa og var ákveðið að para hana í síðasta sinn áður en hún færi á eftirlaun, enda er hún er topp standi bæði andlega og líkamlega. Ynja stendur sem fyrr fyrir sínu, mjólkar vel og er afslöppuð og umhyggjusöm um hvolpana. Ynju þarf vart að kynna, en hún hefur staðið sig frábærlega vel bæði í vinnu og á hundasdýningum. Ynja er fyrsti hundurinn á Íslandi til þess að hljóta 3x 1.einkunn í Hlýðni !-III og er þar með alla Ob titlana (Obedience Champon) sem eru í boði og er fyrsti hreinræktaði hundurinn sem hlýtur ISObCh (Íslenskur Hlýðnimeistari) einnig hefur hún lokið C- prófi í víðavangsleit og snjóflóðaleit hjá Björgunarhundasveit Íslands, hlaut fyrstu einkun í sporaleit og hefur gefið af sér hunda í sérflokki hvað vinnueiginleika varðar. Ynja skilur eftir sig ótrúlegt spor í ræktun á íslandi, hundar sem bæði hafa rétt útlit og vinnueðli.
Pablo, pabbi hvolpanna er ungur og efnilegur hundur. Hann hefur það sem við erum að sækjast eftir í okkar línur, það er frábært geðslag, vinnueðli og að okkar mati einstakt útlit. Einnig er ættbókin hans okkur að skapi, en á bakvið hann eru frábærir hundar sem skorað hafa framúr á öllum sviðum. Þetta er fyrsta gotið hans Pablo og virðist hann ætla að gefa sína frábæru kosti áfram, ef marka má fyrstu sín. Pablo hefur eingöngu mætt á 1 sýningu, en vann hann sinn flokk báða dagana og raðaði sér í sæti um besta rakka tegundar báða daga líka. Stefnt er með hann bæði í hlýðni og sporapróf á næsta ári, en sýnir hann glæsilega takta í því.
Hlökkum við mikið til framhaldsins með þessa litlu hnoðra okkar sem unun er að fá að fylgjast með á hverjum degi.
Pablo vom Team Panoniansee
ISOBCh OB-III OB-II OB-I Vonziu’s Asynja
Forynju F-Got
F-gotið okkar er mætt í heiminn !
Þriðjudaginn 2 nóv. fæddust 7 heilbrigðir og gullfallegir hvolpar, 4 tíkur og 3 rakkar, undan ISCh ISjCh OB-I Ivan von Arlett og Forynju Bríu.
Báðir foreldrarnir eru myndaðir með fríar mjaðmir og olgnboga, heilbrigð, geðgóð og með alveg einstakt vinnu eðli.
Við erum alveg í skýjunum með þessa gullfallegu hvolpa okkar og hlökkum til að sjá þá vaxa og dafna.
Áhugasamir geta haft samband við okkur í gegnum email Forynju@gmail.com
OB-I Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn "Fenni"
Enn einn Forynju hundurinn að ná OB-I titlinum en hann Fenni okkar kláraði þriðju og síðustu 1.einkuninna sem hann þurfti til að geta sótt um OB-I titilinn eða Íslenskur Hlýðni 1 meistari. En hann Fenni náði 189,5 stigum af 200 mögulegum og landaði 1.sætinu af 8 hundum í gær í Hlýðni 1.