Staðfest væntanlegt got í nóvember.
Við kynnum með miklu stolti væntanlegt got í byrjun nóvember !
Forynju F-got
Væntanlegir foreldrar eru :
ISCh ISjCh OB-I Ivan von Arlett x Forynju Bría
Ivan og Bría eru að sjálfsögðu bæði frí af mjaðma og olnbogalosi. Bæði hafa þau lokið vinnuprófum og tekið þátt á sýningum með góðum árangri.
Áhugasamir geta haft samband í gegnum Forynju@gmail.com
Hvolpahittingur hja E-gotinu okkar
Hvolparnir okkur úr E-gotinu urðu 12 vikna um helgina og ákváðum við að henda í smá hvolpahitting.
Það er hrikalega gaman að fá að fylgjast með hvolpunum stækka og dafna eftir að þeir eru komnir á nýju heimilin sín.
Tvöfallt Hlýðnipróf á Akureyri 25-26 sept
Við skelltum okkur með hana OB- I Forynju Bara Vesen norður á Akureyri í tvöfalda Hlýðniprófið sem var haldið á vegum Norðurhunda helgina 25-26 sept.
Þetta var frumraun hennar Vesen í Hlýðni II og niðurstöðurnar voru eftirfarandi:
Laugardagur 1.sæti með 143 stig og 2.einkunn
Sunnudagur 2.sæti með 162,5 stig og 1.einkunn.
Gaman að segja frá því að Ivans sonurinn hann Gjósku Ýktar Væntingar lauk einnig Hlýðni Brons í sinni frumraun og náði 2.sætinu með 160 stig og Bronsmerkið.
Hér koma síðan nokkrar myndir af henni Vesen úr prófinu.
Fyrsta sporapróf árins 2021
Fyrsta sporapróf árins var haldið fimmtudaginn 2.sept. og vorum við hjá Forynju ræktun með einu tvo hundana sem voru skráðir í prófið. En það voru got systkinin Forynju Bara Vesen og Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn ”Fenni”. Bæði kepptu þau í Spori 1 og náðu þau bæði prófi með góðum árangri. Og þar með hefur hann Fenni lokið öllum þeim kröfum sem hann þarf til að geta keppt í Vinnuhundaflokki á sýningum.
Spor I
1. sæti með 90 stig og 1.einkunn Forynju Bara Vesen
2. sæti með 85 stig og 2.einkunn Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn
Dómari Þórhildur Bjartmarz
Prófstjóri Erna
Hlýðnipróf 26. ágúst !
Í gærkvöldi var haldið 6 Hlýðniprófið í ár á vegum Vinnuhundadeildar HRFÍ og eins og alltaf þá áttum við hjá Forynju ræktun frábæra fulltrúa ræktunarinnar okkar og bara frábæra fulltrúa tegundarinnar í prófinu.
En í Hlýðni Brons var hún Forynju Bría skráð, en hún Bría náði heilum 175 stigum af 180 mögulegum og 1. sætinu með Bronsmerkið. Þar með er hún Bría orðin stigahæsti Schaferhundurinn frá upphafi í Hlýðni Brons en hún Bría náði að stela titlinum af systur sinni henni OB-I Forynju Bara Vesen sem var með 173,5 stig.
Í Hlýðni I vorum við með tvo hunda skráða og voru það Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn „Fenni“ og Forynju Ára. En hann Fenni náði 1.sætinu af 7 hundum með 1.einkunn og heil 192 stig af 200 mögulegum og er hann Fenni orðinn annar stigahæsti hundurinn á árinu yfir allar tegundir á eftir systur sinni henni Vesen. Og hún Ára okkar náði 2.einkunn með 142 stig.
Tvöföld sýning HRFÍ dagana 21-22 ágúst 2021
Skemmtileg sýningar helgi að baki þar sem það helsta sem stendur upp úr er að við eignuðumst einn nýjann Íslenskan meistara hann ISCh ISJCh OB-I Ivan von Arlett, mættum í fyrsta skiptið með ræktunarhóp í dóm og unnum besta ræktunarhóp tegundar fyrri daginn og fengum annað sæti seinni daginn og vorum með besta afkvæmahóp tegundar báða dagana þar sem Forynju Aska mætti með afkvæmum sínum og fengu þau þessa skemmtilegu umsögn frá dómaranum “In the group is the bitch with 4 ofsprings. They are all of the same type as mother. and same constroction, same color and movements. The bitch has obviously been a valuable breeding bitch. “ Paula Heikkinen-Lehkonen
Hérna koma nokkrar myndir af fallegu hundunum okkar sem voru teknar á sýningunni.
E-gotið 4 vikna
Aldrei er of snemmt að byrja æfa sig, en við tókum smá pósu æfingu með hvolpunum uppá borði og stóðu þeir sig allir glimrandi vel !
Rakkarnir
Tíkurnar
Forynju E-got
Hvolparnir stækka og stækka og eru farnir að þvælast út um allt, Smelltum nokkrum myndum af molunum út í góða veðrinu.
E-gotið okkar 3 vikna
Smelltum nokkrum myndum af hvolpunum okkar í góða veðrinu í dag, en þeir verða 3 vikna 1. ágúst. Hvolparnir stækka og dafna og eru farnir að grallarast út um allt.
Forynju E-got !
Við kynnum með mikilli ángæðu og miklu stolti Forynju E-gotið .
Sunnudaginn 11 júlí fæddust 8 heilbrigðir og hraustir hvolpar, 5 tíkur og 3 rakkar, undan Welincha’s Izla fra Noregi og RW-19 SG1 SG61 Lider von Panoniansee.
Áhugasamir um hvolp úr þessu goti geta haft samband við okkur í gegnum email Forynju@gmail.com