Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

Forynju Ára

Þann 18. júní síðastliðinn varð hún Forynju Ára 2 ára gömul, haldið var upp á daginn með að skella dömunni í mjaðma- og olnbogamyndatöku og vorum við að fá niðurstöðurnar í hús.
Ára er bæði frí af mjaðma- og olnbogalosi !

Forynju Ára
HD B1
ED A
M: ISObCh OB-III OB-II OB-I Vonziu’s Asynja
F: ISjCh OB-I Ivan von Arlett


Read More
Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

ISObCh ISTrCh OB-III OB-II OB-I Forynju Aska

Okkar stórglæsilega og frábæra Forynju Aska kláraði þriðju og síðustu 1.einkunina í Hlýðni III á dögunum og hefur hún þar með lokið ISObCh - Íslenskur Hlýðni meistari og OB-III.
Aska er fyrsti Schaferinn sem lýkur bæði titlunum Íslenskur Hlýðnimeistari og Íslenskur Sporameistari. En eingungis einn annar Schaferhundur hefur náð að klára titilana ISObCh og OB-III og er það mamma hennar Ösku hún Ynja.

Read More
Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

Hlýðnipróf 10. júlí 2021

Fimmtudaginn 10. júlí var haldið hlýðnipróf á vegum Vinnuhundadeildar HRFÍ. Við hjá Forynju vorum með skráða hunda í Brons, Hlýðni I og Hlýðni III og eins og alltaf stóðu hundarnir okkar og eigendurnir þeirra sig frábærlega !

Forynju Drama var að mæta í fyrsta skiptið í próf einungis 10 mánaða gömul og náði hún Bronsmerkinu og 1. sætinu af 7 skráðum hundum í Brons. Forynju Breki náði einnig frábærum árangri í Bronsprófinu , en hann náði Bronsmerkinu og 3. sætinu í Bronsi af 7 skráðum hundum.
Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn var að taka þátt í fyrsta skiptið í Hlýðni I og náði hann einnig frábærum árangri, en hann náði 2.sæti af 10 skráðum hundum með 1.einkunn.
Forynju Aska tók þátt í Hlýðni III og kláraði hún síðustu 1.einkuninna sem hún þurfti til að geta orðið ISObCh-Íslenskur Hlýðni meistari og OB-III.
En hún Aska er þá fyrsti Schafer hundurinn til að ná að verða bæði Hlýðni og Sporameistari !

Niðurstöður

Brons próf :

1. sæti með 164.5 stig og Bronsmerkið Forynju Drama

3. sæti með 151 stig og Bronsmerkið Forynju Breki

Hlýðni I :

2. sæti með 164,5 stig og 1 einkunn Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn

Hlýðni III :

1. sæti með 270 stig og 1.einkunn Forynju Aska

Read More
Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn

Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn “Fenni”
20 mánaða gamall

M: ISTrCh OB-II OB-I Forynju Aska
F: RW-19 SG1 SG61 Lider von Panoniansee

Read More
Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

Hlýðnipróf 22. apríl

Í dag á Sumardaginn fyrsta var haldið þriðja Hlýðnipróf ársins 2021. Við hjá Forynju ræktun vorum með 5 hunda skráða í prófið í dag og náðu þeir allir prófi.
í heildina voru 7 hundar skráðir í Hlýðni Brons, 9 hundar skráðir í Hlýðni I og 3 hundar skráðir í Hlýðni III

Hlýðni Brons:

2. sæti Forynju Ára - 161 stig m. bronsmerki
3. sæti Welincha’s Izla Fra Noregi - 142.5 stig m. bronsmerki
4. sæti Forynju Bría - 135,5 stig

Hlýðni I:

1. sæti Forynju Bara Vesen - 175,5 stig 1.einkunn.
Þetta var í 3 skiptið sem hún Vesen fær 1.einkunn í Hlýðni I og er hún þar með kominn með titilinn OB-I hlýðni meistari.

Hlýðni III:

2.sæti Forynju Aska - 236,5 stig 2.einkunn

Myndir tók Þórhildur Bjartmarz

Read More
Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

ISTrCh OB-II OB-I Forynju Aska

Skelltum okkur út með myndavélina um helgina og smelltum nokkrum myndum af henni Ösku okkar, útkoman var heldur betur skemmtileg enda auðvelt að taka myndir af fallegum hundi.

Read More
Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

Til Sölu

 Við hjá Forynju ræktun erum með glæsilegan ungan Schäfer rakka til sölu á rétta heimilið. Hundurinn er mjög efnilegur bæði í vinnu og á sýningar, en fyrst og fremst er hann með frábært geðslag. Báðir foreldrar hans eru meistarar, frí af mjaðma og olnbogalosi, frábær í vinnu og geðgóðir heimilishundar. Hundurinn selst með tryggingu (Sjúkrakostnaðar- og Líftryggingu) fram til 1 árs, full bólusettur og með ættbók frá HRFÍ.

Leitum eftir fólki sem:*
* á eigið húsnæði.
* er staðsett á höfuðborgarsvæðinu eða í nærumhverfi.
* eru vanir hundaeigendur, ekki vera ef það er vant tegundinni eða stórum hundum.
* er með áhuga fyrir hundasýningum og vinnu með hundinum sínum (hlýni og/eða spor)

Áhugasamir hafi samband á forynju@gmail.com

DSC00724.jpg
Read More
Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

Hlýðnipróf 14. mars 2021

Sunnudaginn 14. mars var annað Hlýðnipróf ársins haldið á vegum Vinnuhundadeildar HRFÍ . Forynju hundarnir áttu góðu gengi að fagna eins og vanalega, niðurstöður voru eftirfarandi:

Hlýðni 1:

1. sæti - Forynju Bara Vesen 184.5 stig 1.einkunn
3. sæti - Forynju Bestla 110 stig 3.einkunn

Hlýðni III
2. sæti ISTrCh OB-II OB-I Forynju Aska 268,5 stig 1.einkunn.

Eftir þetta próf þá vantar Vesen einungis eina 1.einkunn til að hljóta OB-I titilinn og Ösku vantar einungis eina 1.einkunn til að klára bæði OB-III og ISObCh eða Íslenskur Hlýðni meistari.

Read More
Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

Fyrsta Hlýðnipróf ársins 2021.

Fyrsta Hlýðnipróf árins 2021 á vegum Vinnuhundadeildar HRFÍ var haldið í dag sunnudaginn 21 febrúar.
9 hundar voru skráðir í prófið og áttum við hjá Forynjuræktun 4 hunda af þeim 9 sem voru skráðir (3 Forynju hunda og einn útlending). Allir hundarnir okkar stóðu sig mjög vel og náðu þeir allir prófi.

Forynju Breki og Sölvi voru skráðir í Hlýðni Brons og náðu þeir 3 sæti með 118 stig af 180 mögulegum þrátt fyrir að hafa núllaði í einni æfingu.

Forynju Bestla (Þoka) og Berglind voru skráðar í Hlýðni 1 og náðu þær 3 sæti með 2.einkunn og 155 stig þrátt fyrir að hafa núllað í einni æfingu, munaði einungis 5 stigum að þær hefðu náð 1.einkunn !

Forynju Bara Vesen var skráð í fyrsta sinn í Hlýðni 1 og átti hún æðislegan dag í prófi og náði 1.sætinu með 196.5 stig af 200 mögulegum. Hún er þar með orðin stigahæsti schafer hundurinn frá upphafi í Hlýðni 1 !

OB-II OB-I Vonziu’s Asynja tók þátt í Hlýðni III í dag og náði hún 1.sæti með 1.einkunn og 263 stig af 320 mögulegum ! Þar sem þetta var í þriðja skiptið sem Ynja nær 1.einkunn í Hlýðni III þá hefur hún bætt við sig tveim nýjum Hlýðni titlinum, ISObCh og OB-III !
Ynja er einnig fyrsti hundurinn á Íslandi til að ná ISObCh, OB-III OB-II og OB-I eða 3x fyrstu einkunn í Hlýðni I, II og III.

Prófstjóri: Ingibjörg Friðriksdóttir

Ritari: Tinna Ólafsdóttir

Dómari: Þórhildur Bjartmarz

Þetta er heldur betur góð byrjun á Hlýðni árinu.


Read More
Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

Mæðgurnar ISTrCh OB-II OB-I Forynju Aska og Forynju Bara Vesen

Smelltum nokkrum myndum af mæðgunum, ISTrCh OB-II OB-I Forynju Aska og Forynju Bara Vesen, saman uppí heiði í fallega veðrinu sem var í dag.

Read More

Instagram:

Einnig er hægt að fylgja okkur á Instagram : Forynju