Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

Ck's Team Joker

Við fengum þær skemmtilegu fréttir að hann Joker okkar er frír af mjaðma- og olnbogalosi, en hann var myndaður með A mjaðmir og A olnboga ! Við erum alveg í skýjunum með þessar niðurstöður. En það er búið að mynda 4 hunda af 6 úr gotinu hans Jokers og eru þau öll A/A.
Hann Joker okkar er staddur út í Póllandi eins og er í þjálfun, þar sem er verið að þjálfa hann í spora-, hlýðni og bitvinnu og gengur þjálfunin hans mjög vel. Við fengum nokkrar myndir sendar af honum í bitvinnuþjálfun sem ég læt fylgja hérna með.

Read More
Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

Gleðilegt nýtt ár.

Við hjá Forynjuræktun óskum öllum gleðilegs nýs árs og um leið viljum við þakka öllum vinum okkar og þá sérstaklega hvolpakaupendunum okkar fyrir árið sem er að líða.
Þrátt fyrir fordæmalausa og erfiða COVID tíma undanfarna mánuði áttum við hjá Forynjuræktun samt sem áður mjög gott ár. Nokkur Spora- og Hlýðnipróf voru haldin á árinu og gaman að segja frá þvi að 5 af 6 Schäferhundum sem luku sporaprófi í ár voru Forynju hundar, 6 hundurinn var frá vinum okkar í Gjóskuræktun.
8 Schäferhundar luku Hlýðniprófi í ár, 6 Forynju hundar og 2 innfluttir hundar í eigu Forynjuræktunar. Tveir Schäferhundar kláruðu OB-I eða Íslenskur Hlýðni 1 meistari og voru það félagarnir Forynju Aston og Ivan von Arlett.
Einungis ein sýning var haldin á árinu enn þar áttum við besta ungliða tegundar, allir hvolparnir okkar fengu Sérlega Lofandi (1.einkunn i hvolpafl.), fengum bæði Íslensku Meistarastigin í snögghærðum Schäfer og allir fullorðnu hundarnir sem við vorum með skráða á sýninguna röðuðu sér í sæti í besta rakka og bestu tík.
Enn og aftur þökkum við fyrir það gamla og förum full tilhlökkunar inn í nýtt ár.
Niðurstöður ársinns má sjá hér fyrir neðan.

Úrslit úr vinnuprófum 2020

Spor :
1. Forynju Breki 95 stig
2. Forynju Bestla 88 stig
3.-6. Forynju Ára 85 stig
3.-6. Forynju Bara Vesen 85 stig
3.-6. Forynju Bylur 85 stig

Hlýðni Brons
1. Forynju Bara Vesen 173.5 stig
2. Forynju Bestla 141.5
3. Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn 137 stig
4. Forynju Breki 97

Hlýðni I
1. ISJCh OB-I Ivan von Arlett 189.5 stig
2. OB-I Forynju Aston 185 stig

Hlýðni III
1. ISTrCh OB-II OB-I Forynju Aska 267.5 stig
2. OB-II OB-I Vonziu’s Asynja 254.5 stig

Úrslit af sýningum 2020

ISJCh OB-I Ivan von Arlett - Annar stigahæsti snögghærði rakki ársinns 2020
Welincha’s Izla fra Noregi - Önnur stigahæsta snögghærða tík ársinns 2020. Stigahæsti ungliði ársinns 2020
ISTrCh OB-II OB-I Forynju Aska - Þriðja stigahæsta snögghærða tík ársinns 2020.

Hvolpafl.
Forynju Breki - Besti hvolpur af gagnstæðukyni - BOS 6-9 mánaða.
Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn - 2 besti rakki 6-9 mánaða.
Forynju Bara Vesen - 2 besta tík 6-9 mánaða
Forynju Bestla - 3 besta tík 6-9 mánaða
Forynju Ára - 4 besta tík 6-9 mánaða

Read More
Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

Gleðilega Hátíð !

Góða veðrið í gær á annan í jólum var heldur betur vel nýtt, við skelltum okkur út í ný fallna jólasnjóinn og skemmtum okkur konunglega og smelltum nokkrum myndum af hundunum okkar.

Myndir : Sigríður Helga Pálsdóttir

Read More
Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

Forynju Bara Vesen

Þessi 15 mánaða gamli gullmoli er stigahæsti hundurinn (Allar tegundir) í Hlýðni Brons fyrir árið 2020.
Hún náði þeim magnaða árangri í fyrsta prófinu sínu einungis 9 mánaða gömul að ná 173,5 stigum af 180 mögulegum. Hún er einnig stigahæsti Schaferinn frá upphafi í Hlýðni Brons enn hundurinn sem hún stal titlinum af er amma hennar Vesen hún OB-II OB-I Vonziu’s Asynja, en Ynja hafði verið stigahæsti schafer hundurinn í Hlýðni Brons frá 2014.
Enn hún Vesen er ekki bara þrusu dugleg og klár heldur er hún einnig gullfalleg eins og má sjá á myndunum hérna fyrir neðan.

M: ISTrCh OB-II OB-I Forynju Aska
F: RW-19 SG1 SG61 Lider von Panoniansee

129279043_1248956355479436_5393767579469020091_n.jpg
Read More
Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

Ck's Team Joker

Fengum sendar þessar myndir af honum Ck's Team Joker í IGP þjálfun. Það stóð til að fá hann Joker heim til Íslands í ár, en Covid-19 hefur heldur betur ruglað öllum plönum, í staðinn ákváðum við að senda hann Joker í þjálfun og verður hann þar til seint á næsta ári.

Verður gaman þegar við getum loksinns fengið þennan flotta gaur heim á klakann.

Read More
Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

Hvolpahittingur

Laugardaginn 17.okt vorum við hjá Forynju- og Gjóskuræktun með hvolpahitting fyrir yngstu gotin okkar, Forynju D-got, Gjósku Y-got, einnig fengu Forynju Bara Vesen og Gjósku Xtra að þvælast með litlu syskinum sínum. Frábær mæting var á hittingin í þessu góða hausveðri.

Sigríður Helga Pálsdóttir kom og tók myndir af hvolpunum og eigendum þeirra.

Read More
Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

Forynju Bestla

Fengum sendar þessar glæsilegu myndir af Forynju Bestlu sem eru teknar af henni Carolin Giese.

Þessi glæsilega tík er undan ISTrCh OB-II OB-I Forynju Ösku og RW-19 SG1 SG61 Lider von Panoniansee. Forynju Bestla gengur dags daglega undir nafninu Þoka og er hún í eigu Berglindar Ránar Helgadóttur og fjölskyldu.
Þoka og Berglind eru búnar að ná þvílíkum árangri saman þrátt fyrir ungan aldur þeirra beggja, Þoka sem varð 1 árs þann 9. ágúst og Berglind sem er einungis 17 ára gömul, enn þær stöllurnar eru búnar að ná saman Spori 1, Hlýðni Brons og Bronsmerkinu og eru hvergi nær hættar.
Þoka hefur lokið öllum kröfum sem gerðar eru til þess að hundar geti keppt í vinnuhundaflokki á sýningum, enn það eru ekki margir hundar hér á íslandi sem geta montað sig af því.

Hægt er að sjá fleiri myndir frá henni Carolin Giese inná Instagram síðunni hennar hér

Read More
Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

Ivan von Arlett 3 ára

Hann Ivan okkar varð 3 ára í dag 9.okt.
Það eru rúm 2 ár síðan hann Ivan kom til okkar frá Þýskalandi og gætum við ekki hafa verið heppnari með þennan fallega og góða hund.

Read More
Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

D-got 7 vikna

Krúttkögglarnir okkar eru orðnir 7 vikna og fara alveg að verða tilbúinir að fara að heiman og gleðja nýju fjölskyldurnar sínar !

Read More
Hildur Palsdottir Hildur Palsdottir

D-got 6 vikna

Hvolparnir okkur undan Ösku og Ivani vaxa hratt og dafna vel. Við skelltum okkur með þau út í rigninguna í gær og smelltum nokkrum myndum af þeim en þau urðu 6 vikna á laugardaginn.

Read More

Instagram:

Einnig er hægt að fylgja okkur á Instagram : Forynju