Sporapróf 14. júní
Annað sporapróf árins var haldið að kvöldi 14 júní við Nesjavallarveg. Við hjá Forynju ræktun áttum auðvita frábæra fulltrúa í prófinu og áttum við 1. sætið í öllum þeim flokkunum sem prófað var í.
Forynju Bría og Karolína eigandi hennar voru í 1.sætinu með 90 stig og 1.einkunn í Spor I, en þetta var frumraun þeirra beggja í spori. Þar með hefur hún Bría lokið öllum kröfum til að geta keppt í vinnuhunda fl. á sýningum HRFÍ. Frábær árangur hjá þeim !
OB-II OB-I Forynju Bara Vesen tók sína frumraun í Spor II og landaði 1.sætinu með 90 stig og 1.einkunn. En sporaslóðin er 1.000 m, 5 millihutir og einn endahlutur, og þáttakandi hefur 35 min til að klára sporið. Vesen skilaði öllum 6 hlutunum og kláraði sporaslóðina á 12 mín !
Stórstjarna kvöldsins var samt sem áður hún ISObCh ISTrCh OB-III OB-II OB-I Forynju Aska, en hún var skráð í Spor Elite, Aska kláraði prófið villulaust, skilaði öllum hlutum og kláraði sporið á einungis 22 mín ! En hún Aska uppskar 1.sætið með 100 stig (af 100 mögulegum) og 1.einkunn ! Þar með hefur hún Aska fengið annan titil í safnið eða ISEliteTrCh !
En hún Aska er fyrsti Schaferhundurinn til að ná þessum árangri og annar hundurinn á Íslandi!
Tekið úr sporareglum fyrir Spor Elite: Sporaleggjari leggur u.þ.b. 1500 metra langa sporaslóð (með ,,Finna spor“ æfingunni). Slóðin á að vera 100-120 mínútna gömul og skal innihalda sjö til átta vinkla, þar af tvo 30°, níu millihluti og endahlut. Sporaslóðin skal innihalda krossspor sem lagt er af öðrum sporleggjara en lagði hinn hluta sporsins. Hámarkstími til að ljúka prófi eru 55 mínútur. Tímataka hefst við upphafspunkt eftir merki frá dómara/prófstjóra.