Gleðilegt nýtt ár !

Um leið og við viljum óska öllum gleðilegs nýs árs og þakka fyrir samfylgdina á árinu sem leið þá langar okkur að kynna nýjasta gotið okkar Forynju G-got !
En þann 16 desember síðast liðinn þá fæddust hjá okkur 9 hvolpar, 7 tíkur og 2 rakkar, undan stórstjórnunni okkar henni ISObCh ISTrCh OB-III OB-II OB-I Forynju Ösku og nýjasta innflutta rakkanum okkar, hinum stór glæsilega, Pablo vom Team Panoniansee. Hvolparnir stækka og dafna, eru allir búnir að opna augun og eru þeir farnir að brölta út um allt. Við erum alveg í skýjunum með þessa gullfallegu hvolpa.

Previous
Previous

Forynju G-got 4 vikna.

Next
Next

Hittingur hjá E-gotinu okkar á annan í jólum.