Hlýðnipróf 10. júlí 2021

Fimmtudaginn 10. júlí var haldið hlýðnipróf á vegum Vinnuhundadeildar HRFÍ. Við hjá Forynju vorum með skráða hunda í Brons, Hlýðni I og Hlýðni III og eins og alltaf stóðu hundarnir okkar og eigendurnir þeirra sig frábærlega !

Forynju Drama var að mæta í fyrsta skiptið í próf einungis 10 mánaða gömul og náði hún Bronsmerkinu og 1. sætinu af 7 skráðum hundum í Brons. Forynju Breki náði einnig frábærum árangri í Bronsprófinu , en hann náði Bronsmerkinu og 3. sætinu í Bronsi af 7 skráðum hundum.
Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn var að taka þátt í fyrsta skiptið í Hlýðni I og náði hann einnig frábærum árangri, en hann náði 2.sæti af 10 skráðum hundum með 1.einkunn.
Forynju Aska tók þátt í Hlýðni III og kláraði hún síðustu 1.einkuninna sem hún þurfti til að geta orðið ISObCh-Íslenskur Hlýðni meistari og OB-III.
En hún Aska er þá fyrsti Schafer hundurinn til að ná að verða bæði Hlýðni og Sporameistari !

Niðurstöður

Brons próf :

1. sæti með 164.5 stig og Bronsmerkið Forynju Drama

3. sæti með 151 stig og Bronsmerkið Forynju Breki

Hlýðni I :

2. sæti með 164,5 stig og 1 einkunn Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn

Hlýðni III :

1. sæti með 270 stig og 1.einkunn Forynju Aska

Previous
Previous

ISObCh ISTrCh OB-III OB-II OB-I Forynju Aska

Next
Next

Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn