Hlýðnipróf 22. apríl
Í dag á Sumardaginn fyrsta var haldið þriðja Hlýðnipróf ársins 2021. Við hjá Forynju ræktun vorum með 5 hunda skráða í prófið í dag og náðu þeir allir prófi.
í heildina voru 7 hundar skráðir í Hlýðni Brons, 9 hundar skráðir í Hlýðni I og 3 hundar skráðir í Hlýðni III
Hlýðni Brons:
2. sæti Forynju Ára - 161 stig m. bronsmerki
3. sæti Welincha’s Izla Fra Noregi - 142.5 stig m. bronsmerki
4. sæti Forynju Bría - 135,5 stig
Hlýðni I:
1. sæti Forynju Bara Vesen - 175,5 stig 1.einkunn.
Þetta var í 3 skiptið sem hún Vesen fær 1.einkunn í Hlýðni I og er hún þar með kominn með titilinn OB-I hlýðni meistari.
Hlýðni III:
2.sæti Forynju Aska - 236,5 stig 2.einkunn
Myndir tók Þórhildur Bjartmarz