Fyrsta Hlýðnipróf ársins 2021.
Fyrsta Hlýðnipróf árins 2021 á vegum Vinnuhundadeildar HRFÍ var haldið í dag sunnudaginn 21 febrúar.
9 hundar voru skráðir í prófið og áttum við hjá Forynjuræktun 4 hunda af þeim 9 sem voru skráðir (3 Forynju hunda og einn útlending). Allir hundarnir okkar stóðu sig mjög vel og náðu þeir allir prófi.
Forynju Breki og Sölvi voru skráðir í Hlýðni Brons og náðu þeir 3 sæti með 118 stig af 180 mögulegum þrátt fyrir að hafa núllaði í einni æfingu.
Forynju Bestla (Þoka) og Berglind voru skráðar í Hlýðni 1 og náðu þær 3 sæti með 2.einkunn og 155 stig þrátt fyrir að hafa núllað í einni æfingu, munaði einungis 5 stigum að þær hefðu náð 1.einkunn !
Forynju Bara Vesen var skráð í fyrsta sinn í Hlýðni 1 og átti hún æðislegan dag í prófi og náði 1.sætinu með 196.5 stig af 200 mögulegum. Hún er þar með orðin stigahæsti schafer hundurinn frá upphafi í Hlýðni 1 !
OB-II OB-I Vonziu’s Asynja tók þátt í Hlýðni III í dag og náði hún 1.sæti með 1.einkunn og 263 stig af 320 mögulegum ! Þar sem þetta var í þriðja skiptið sem Ynja nær 1.einkunn í Hlýðni III þá hefur hún bætt við sig tveim nýjum Hlýðni titlinum, ISObCh og OB-III !
Ynja er einnig fyrsti hundurinn á Íslandi til að ná ISObCh, OB-III OB-II og OB-I eða 3x fyrstu einkunn í Hlýðni I, II og III.
Prófstjóri: Ingibjörg Friðriksdóttir
Ritari: Tinna Ólafsdóttir
Dómari: Þórhildur Bjartmarz
Þetta er heldur betur góð byrjun á Hlýðni árinu.