Forynju É-got

Í lok Október fæddust 3 gull fallegir rakkar undan Ynju okkar og nýju vonarstjörnunni Pablo vom Team Panoniansee. Þeir njóta sín extra vel á mjólkurbarnum, enda margir spenar í boði fyrir hvern og einn. Eru þeir allir gullfallegir og virðast ætla að standast allar væntingar sem við gerðum til þessarar pörunar.

Ynja á fyrir 6 hvolpa og var ákveðið að para hana í síðasta sinn áður en hún færi á eftirlaun, enda er hún er topp standi bæði andlega og líkamlega. Ynja stendur sem fyrr fyrir sínu, mjólkar vel og er afslöppuð og umhyggjusöm um hvolpana. Ynju þarf vart að kynna, en hún hefur staðið sig frábærlega vel bæði í vinnu og á hundasdýningum. Ynja er fyrsti hundurinn á Íslandi til þess að hljóta 3x 1.einkunn í Hlýðni !-III og er þar með alla Ob titlana (Obedience Champon) sem eru í boði og er fyrsti hreinræktaði hundurinn sem hlýtur ISObCh (Íslenskur Hlýðnimeistari) einnig hefur hún lokið C- prófi í víðavangsleit og snjóflóðaleit hjá Björgunarhundasveit Íslands, hlaut fyrstu einkun í sporaleit og hefur gefið af sér hunda í sérflokki hvað vinnueiginleika varðar. Ynja skilur eftir sig ótrúlegt spor í ræktun á íslandi, hundar sem bæði hafa rétt útlit og vinnueðli.

Pablo, pabbi hvolpanna er ungur og efnilegur hundur. Hann hefur það sem við erum að sækjast eftir í okkar línur, það er frábært geðslag, vinnueðli og að okkar mati einstakt útlit. Einnig er ættbókin hans okkur að skapi, en á bakvið hann eru frábærir hundar sem skorað hafa framúr á öllum sviðum. Þetta er fyrsta gotið hans Pablo og virðist hann ætla að gefa sína frábæru kosti áfram, ef marka má fyrstu sín. Pablo hefur eingöngu mætt á 1 sýningu, en vann hann sinn flokk báða dagana og raðaði sér í sæti um besta rakka tegundar báða daga líka. Stefnt er með hann bæði í hlýðni og sporapróf á næsta ári, en sýnir hann glæsilega takta í því.

Hlökkum við mikið til framhaldsins með þessa litlu hnoðra okkar sem unun er að fá að fylgjast með á hverjum degi.


Pablo vom Team Panoniansee

ISOBCh OB-III OB-II OB-I Vonziu’s Asynja

Previous
Previous

Forynju F-got

Next
Next

Forynju F-Got