Hlýðnipróf 27.08.2020

Fimmtudagskvöldið 27. ágúst var haldið þriðja hlýðnipróf ársinns á vegum Vinnuhundadeildar HRFÍ.
11 hundar voru skráðir í prófið, 8 hundar í Hlýðni Brons, 2 í Hlýðni I og 1 í Hlýðni II.

Áttum við 2 hunda í Brons prófi sem náðu prófi og voru það Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn (Fenni) og Forynju Breki. Fenni náði 3 sætinu með 137 stig og fékk Bronsmerkið, hann var 1 af 2 hundum í prófinu sem náði merkinu en til þess að fá Bronsmerkið þá þarf að fá einkunn í öllum æfingunum. Forynju Breki náði 5 sætinu með 97 stig.

Ivan von Arlett náði 1.einkunn í Hlýðni I með 185 stigum af 200 mögulegum og var þetta hans þriðja 1.einkunn og er hann þar með kominn með tiltilinn OB-I eða Íslenskur Hlýðni 1 meistari.

Previous
Previous

D-got 6 vikna

Next
Next

Forynju D-got