Sporapróf 20.08.2020

Þriðja sporapróf ársinns var haldið í gærkvöldi á vegum Vinnuhundadeildar HRFÍ uppí Hólmsheiði.
Dómari var Þórhildur Bjartmarz og prófstjóri Ingibjörg Friðriksdóttir.

Vorum við hjá Forynju ræktun með 3 hunda skráða í prófið, gotsystkynin Forynju Breki, Forynju Bylur og Forynju Bara Vesen, náðu þau öll prófinu !

Forynju Breki í 1. sæti með 1.einkunn og 95 stig
Forynju Bylur og Forynju Bara Vesen voru jöfn í 2.-3.sæti með 2.einkunn og 85 stig.

Það sem af er að árinu þá er hann Forynju Breki stigahæsti hundurinn í spor 1 og stigahæsti sporahundurinn !

Einnig hefur Forynju Bara Vesen lokið öllu sem þarf til að geta keppt í Vinnuhundaflokki á sýningum HRFÍ.

Gaman er einnig að segja frá því að nú hafa 6 hundar náð að ljúka sporaprófi í ár og eru 5 af þeim Forynju hundar !

Óskum eigendum þeirra innilega til hamingju með frábæran árangur !

Previous
Previous

Forynju D-got

Next
Next

D-hvolparnir 3 vikna