Fyrsta Hlýðnipróf ársinns 2020
Þann 21 maí var haldið fyrsta hlýðnipróf ársinns á vegum Vinnuhundadeildar HRFÍ.
Keppt var i Hlýðni Brons og Hlýðni I - III mjög góð skráning var í prófið og áttum við hjá Forynju ræktun fjóra hunda skráða, einn hund í Hlýðni Brons, tvo í Hlýðni I og einn í Hlýðni III.
Gaman er að segja frá því að við áttum ÖLL efstu sætin í okkar flokkum !
Forynju Bara Vesen var að taka þátt í fyrsta skiptið í hlýðni prófi aðeins 9 mánaða gömul og rúllaði hún upp prófinu og náði hún þeim frábæra árangri að toppa bæði mömmu sína og ömmu í stigum ! En amma hennar Vesen hún Vonziu’s Asynja var á sínum tíma með 173 stig og er búin að vera stigahæsti Schafer hundurinn frá 2014 ! En Vesen lauk prófinu með 173,5 stig af 180 mögulegum og hlaut að sjálfsögðu Bronsmerkið !
Ivan von Arlett og Forynju Aston voru báðir skráðir í Hlýðni I, þeir félagar hafa verið svoldið samstíga í þessum hlýðniprófum og hafa þeir til skiptis unnið hvorn annan. En að þessu sinni endaði Ivan í fyrsta sæti með 189,5 stig og Forynju Aston í örðu sæti með 185 stig. Báðir voru að taka þátt í annað sinn í hlýðni I og fengu þeir báðir sína aðra 1. einkunn, þá vantar þeim bara eina 1.einkunn til viðbótar til að hljóta titilinn OB-I (Íslenskur Hlýðni 1 meistari).
Forynju Aska tók í fyrsta sinn þátt í Hlýðni III og hlaut hún 1.sætið með 1. einkunn. Það hafa einungis tveir aðrir hundar á Íslandi hlotið 1.einkunn í Hlýðni III og annar þeirra er mamma hennar Ösku hún Vonziu’s Asynja. Nú er stefnan tekin á að klára ISObCh (Íslenskur Hlýðni Meistari).
Hlýðni Brons :
sæti Forynju Bara Vesen með 173,5 stig og Bronsmerkið.
Hlýðni I :
sæti Ivan von Arlett með 189,5 stig og 1. einkunn
sæti Forynju Aston með 185 stig og 1. einkunn
Hlýðni III :
sæti Forynju Aska með 267,5 stig og 1. einkunn