Ck's Joker væntanlegur til Íslands.
Þá er hægt að byrja að monnta sig af nýjustu viðbótinni hjá Forynju ræktun. Seint á síðasta ári festum við kaup á hvolpi úr, að okkar mati, einu mest spennandi goti sem fæðst hefur síðustu ár. Væntanlegur til Íslands í haust er Ck’s Joker, en hann er undan V6 Serap vom Rumbachtal og 2xVA1 Willy vom Kuckucksland og hlökkum við mikið til að fá þennan ofur rakka með sprengju ættbók í fallega hópinn okkar.
Willy vom Kuckucksland hefur sigrað vinnuhundaflokk á siegershow síðustu tvö ár, hann sigraði ungliða flokkinn á siegershow 2014, en hefur sigrað alls 10 sinnum á siegershow í 7 löndum. Willy er ekki eingöngu gullfallegur, heldur kemur hann af fyrsta flokks ættum og á bakvið hann eru margir af þekktustu og eftirsóttustu hundum í heiminum. Willy hefur einnig sannað sig sem fyrsta flokks ræktunarhundur, en afkvæmi hans hafa sigrað allstaðar í heiminum, þar af sigruðu dætur hans ungliða og unghundaflokk á siegershow 2018 í Þýskalandi. Willy er með hæstu vinnugráðu og gefur af sér fyrsta flokks, útlit, heilbrigði og vinnueiginleika og getur ekki talist skrítið að hann sé allra vinsælasti ræktunarhundur í schäferheiminum í dag.
V6 Serap vom Rumbachtal er ein efnilegasta tík á sýningum í dag, en hefur hún sigrað stórar sýningar, bæði í Þýskalandi, Hollandi og Tyrklandi. Hún var SG24 sem ungliði á sieger show og í fyrra náði hún þeim geggjaða árangri að vera V6 sem og hljóta sérstök verðlaun fyrir bestu bitvinnuna af öllum tíkum á sýningunni. Er henni spáð góðs gengis á næsta sieger show og hlökkum við mikið til að fylgjast með henni í Nurnberg í september. Serap hefur einnig verið sýnd með góðum árangri á FCI sýningum sem er ekki algengt með schäferhunda í toppnum í Þýskalandi. Er þetta hennar fyrsta got, en komu 6 hvolpar hvert öðru fallegra sem áhugavert verður að fylgjast með í framtíðinni og hreint ótrúlegt að einn þeirra sé að koma á litla Ísland.
Í Joker okkar koma saman nýjar og spennandi, sem og gamlar þekktar ættir sem smell passa inní okkar ræktunarprógramm. Erum við ótrúlega spennt fyrir þessum litla mola sem á án efa eftir að gera frábæra hluti á sýningum, í vinnu og í ræktun hér á landi...