Forynju Bestla
Fengum sendar þessar glæsilegu myndir af Forynju Bestlu sem eru teknar af henni Carolin Giese.
Þessi glæsilega tík er undan ISTrCh OB-II OB-I Forynju Ösku og RW-19 SG1 SG61 Lider von Panoniansee. Forynju Bestla gengur dags daglega undir nafninu Þoka og er hún í eigu Berglindar Ránar Helgadóttur og fjölskyldu.
Þoka og Berglind eru búnar að ná þvílíkum árangri saman þrátt fyrir ungan aldur þeirra beggja, Þoka sem varð 1 árs þann 9. ágúst og Berglind sem er einungis 17 ára gömul, enn þær stöllurnar eru búnar að ná saman Spori 1, Hlýðni Brons og Bronsmerkinu og eru hvergi nær hættar.
Þoka hefur lokið öllum kröfum sem gerðar eru til þess að hundar geti keppt í vinnuhundaflokki á sýningum, enn það eru ekki margir hundar hér á íslandi sem geta montað sig af því.
Hægt er að sjá fleiri myndir frá henni Carolin Giese inná Instagram síðunni hennar hér