Fyrsta Hlýðnipróf ársinns 2020
Þann 21 maí var haldið fyrsta hlýðnipróf ársinns á vegum Vinnuhundadeildar HRFÍ.
Keppt var i Hlýðni Brons og Hlýðni I - III mjög góð skráning var í prófið og áttum við hjá Forynju ræktun fjóra hunda skráða, einn hund í Hlýðni Brons, tvo í Hlýðni I og einn í Hlýðni III.
Gaman er að segja frá því að við áttum ÖLL efstu sætin í okkar flokkum !
Forynju Bara Vesen var að taka þátt í fyrsta skiptið í hlýðni prófi aðeins 9 mánaða gömul og rúllaði hún upp prófinu og náði hún þeim frábæra árangri að toppa bæði mömmu sína og ömmu í stigum ! En amma hennar Vesen hún Vonziu’s Asynja var á sínum tíma með 173 stig og er búin að vera stigahæsti Schafer hundurinn frá 2014 ! En Vesen lauk prófinu með 173,5 stig af 180 mögulegum og hlaut að sjálfsögðu Bronsmerkið !
Ivan von Arlett og Forynju Aston voru báðir skráðir í Hlýðni I, þeir félagar hafa verið svoldið samstíga í þessum hlýðniprófum og hafa þeir til skiptis unnið hvorn annan. En að þessu sinni endaði Ivan í fyrsta sæti með 189,5 stig og Forynju Aston í örðu sæti með 185 stig. Báðir voru að taka þátt í annað sinn í hlýðni I og fengu þeir báðir sína aðra 1. einkunn, þá vantar þeim bara eina 1.einkunn til viðbótar til að hljóta titilinn OB-I (Íslenskur Hlýðni 1 meistari).
Forynju Aska tók í fyrsta sinn þátt í Hlýðni III og hlaut hún 1.sætið með 1. einkunn. Það hafa einungis tveir aðrir hundar á Íslandi hlotið 1.einkunn í Hlýðni III og annar þeirra er mamma hennar Ösku hún Vonziu’s Asynja. Nú er stefnan tekin á að klára ISObCh (Íslenskur Hlýðni Meistari).
Hlýðni Brons :
sæti Forynju Bara Vesen með 173,5 stig og Bronsmerkið.
Hlýðni I :
sæti Ivan von Arlett með 189,5 stig og 1. einkunn
sæti Forynju Aston með 185 stig og 1. einkunn
Hlýðni III :
sæti Forynju Aska með 267,5 stig og 1. einkunn
Ck's Joker
CK’s Joker litla ofurstjarnan okkar fór í þjálfun núna í byrjun apríl og fáum við reglulega update af honum þaðan. Hann sýnir frábæra takta í bæði hlýðni, spora og bitvinnu þjálfun og erum við gríðarlega stolt af og spennt fyrir þessum gaur.
Stefnan var að taka hann heim seinna á þessu ári, en vegna ástandsins í heiminum erum við að spá í því að hafa hann lengur úti og hugsanlega mæta með hann á einhverjar sýningar hvort sem það yrði í Tyrklandi eða annarsstaðar í evrópu. Hérna eru 2 myndbönd af þessum glæsilega 6 mánaða rakka, en má með sanni segja að enginn hundur hafi komið hingað til lands með aðra eins ættbók á bakinu. Hlökkum við gríðarlega til framtíðarinnar með honum.
Myndataka !
Við ákváðum að henda í nýjar “Profile” myndir fyrir alla hundana okkar og niðurstaðan var heldur betur góð, enda ekki leiðinlegt myndefni.
Myndirnar eru allar teknar af Sigríði Helgu Pálsdóttur !
Forynju Alfa
Forynju Alfa sem gengur dags daglega undir nafninu Isla (borið fram Æla, já Æla), lifir góða lífinu út í Skotlandi á eyjunni Skye með eigendum sínum James Cameron og Lenka Cameron.
Isla ásamt eigendum sínum er að vinna í klífa alla svo kölluðu Munro tinda í Skotlandi sem eru alls 282 talsinns ! Mjög gaman er að fylgjast með ævintýrum litlu fjölskyldunnar í Skotlandi.
Læt fylgja með nokkrar myndir af drottningunni á ævintýrum sínum.
Fyrsta sýning ársins 2020
Sýningar árið 2020 fór af stað með stæl hjá okkur í Forynju ræktun ! En fyrsta sýning ársinns var haldin núna um helgina í reiðhöllinni í Víðidalnum. Vorum við með allt í allt 12 hunda skráða frá okkur eða í okkar eigu.
Við áttum 7 hvolpa skráða í eldri hvolpa flokk, 3 rakka og 4 tíkur, fengu þau öll einkunina Sérlega Lofandi og varð hann Forynju Breki BoS - Besti hvolpur 6-9 mánaða af gagnstæðukyni.
Í hvolpaflokki þá geta hvolparnir fengið einkunnina Minna Lofandi, Lofandi eða Sérlega Lofand. Einnig átti hann Lider okkar í heildina skráð 14 afkvæmi og fengu þau öll einkunina Sérlega Lofandi. Voru all felstir hvolparnir og eigendur þeirra að feta sín fyrstu skref í sýningarhringnum og stóðu þau sig öll frábærlega og hlökkum við mikið til að fylgjast með þeim í framtíðinni.
Velgengni okkar hélt síðan áfram í flokki fullorðna og endaði hann ISJCh Ivan von Arlett sem annar besti rakki tegundar og fékk sitt annað Íslenska Meistarastig og vara-Alþjóðlegt meistarastig. Nýja tíkin okkar hún Welincha’s Izla Fra Noregi endaði sem besti ungliði tegundar og önnur besta tík tegundar með Ungliða Meistarastig og Íslenskt Meistarastig á sinni fyrstu sýningu hérna á Íslandi aðeins 12 mánaða gömul. ISTrCh OB-II OB-I Forynju Aska endaði sem þriðjda besta tík með vara-alþjóðlegt meistarastig.
Takk allir sem komu og voru með okkur. Nú er bara að hlakka til næstu sýningar !
En hérna koma síðan allar niðurstöður helgarinnar :
Hvolpar 6-9 mánaða
Rakkar
Forynju Breki - 1. sæti SL BoS - Besti hvolpur tegundar af gagnstæðukyni
Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn - 2. sæti SL
Forynju Bylur - SL
Hvolpar 6-9 mánaða
Tíkur
Forynju Bara Vesen - 2. sæti SL
Forynju Bestla - 3. sæti SL
Forynju Ára - 4. sæti SL
Forynju Bría - SL
Rakkar
Opinn fl.
Lider von Panoniansee - 2.sæti Excellent, Meistaraefni
Vinnuhundafl.
Ivan von Arlett - 1. sæti Excellent, Meistaraefni, 2 besti rakki tegundar, Íslenskt Meistarastig, Vara- Cacib
Tíkur
Ungliðafl.
Welincha’s Izla Fra Noregi - 1.sæti Excellent, Meistaraefni, 2. besta tík tegundar, Íslenskt Meistarastig, Ungliða Meistarastig, BOB Ungliði.
Opinn fl.
Vonziu’s Asynja - 2. sæti Excellent
Vinnuhundafl.
Forynju Aska - 1.sæti Excellent, Meistaraefni, 3 besta tík tegundar, Vara-Cacib.
Hérna koma nokkrar myndir sem hún Þórhildur Bjartmarz tók á sýningunni.
Ck's Joker væntanlegur til Íslands.
Þá er hægt að byrja að monnta sig af nýjustu viðbótinni hjá Forynju ræktun. Seint á síðasta ári festum við kaup á hvolpi úr, að okkar mati, einu mest spennandi goti sem fæðst hefur síðustu ár. Væntanlegur til Íslands í haust er Ck’s Joker, en hann er undan V6 Serap vom Rumbachtal og 2xVA1 Willy vom Kuckucksland og hlökkum við mikið til að fá þennan ofur rakka með sprengju ættbók í fallega hópinn okkar.
Willy vom Kuckucksland hefur sigrað vinnuhundaflokk á siegershow síðustu tvö ár, hann sigraði ungliða flokkinn á siegershow 2014, en hefur sigrað alls 10 sinnum á siegershow í 7 löndum. Willy er ekki eingöngu gullfallegur, heldur kemur hann af fyrsta flokks ættum og á bakvið hann eru margir af þekktustu og eftirsóttustu hundum í heiminum. Willy hefur einnig sannað sig sem fyrsta flokks ræktunarhundur, en afkvæmi hans hafa sigrað allstaðar í heiminum, þar af sigruðu dætur hans ungliða og unghundaflokk á siegershow 2018 í Þýskalandi. Willy er með hæstu vinnugráðu og gefur af sér fyrsta flokks, útlit, heilbrigði og vinnueiginleika og getur ekki talist skrítið að hann sé allra vinsælasti ræktunarhundur í schäferheiminum í dag.
V6 Serap vom Rumbachtal er ein efnilegasta tík á sýningum í dag, en hefur hún sigrað stórar sýningar, bæði í Þýskalandi, Hollandi og Tyrklandi. Hún var SG24 sem ungliði á sieger show og í fyrra náði hún þeim geggjaða árangri að vera V6 sem og hljóta sérstök verðlaun fyrir bestu bitvinnuna af öllum tíkum á sýningunni. Er henni spáð góðs gengis á næsta sieger show og hlökkum við mikið til að fylgjast með henni í Nurnberg í september. Serap hefur einnig verið sýnd með góðum árangri á FCI sýningum sem er ekki algengt með schäferhunda í toppnum í Þýskalandi. Er þetta hennar fyrsta got, en komu 6 hvolpar hvert öðru fallegra sem áhugavert verður að fylgjast með í framtíðinni og hreint ótrúlegt að einn þeirra sé að koma á litla Ísland.
Í Joker okkar koma saman nýjar og spennandi, sem og gamlar þekktar ættir sem smell passa inní okkar ræktunarprógramm. Erum við ótrúlega spennt fyrir þessum litla mola sem á án efa eftir að gera frábæra hluti á sýningum, í vinnu og í ræktun hér á landi...
Gleðileg jól og farsælt komandi ár !
Við hjá Forynju ræktun óskum öllum farsældar á komandi ári og þökkum fyrir árið sem er að líða.
Forynju Bría 4 mánaða
Fengum þessar æðislegu myndir af henni Forynju Bríu !
Ljósmyndari : Patrycja Makowska
Schäferganga
Sunnudaginn 8. desember héldum við hjá Forynju ásamt Gjósku ræktun göngu. Hittumst við í Hljómskálagarðinum kl 14.00 og gengum hring í kringum Reykjavíkur tjörnina í góðu veðri. Það var frábær mæting og voru allir til fyrirmyndar og vöktu hundarnir mikla lukku niðri í bæ.
Takk fyrir okkur og síðan stefnum við á að gera þetta oftar. Það er ávallt gaman að hitta fólk með fallegu hundana sína.