Gleðilegt nýtt ár.
Óskum öllum gleðilegs nýs árs og með þökk fyrir það gamla. Árið 2016 er búið að vera viðburða ríkt ár, fengum ræktunar nafnið okkar samþykkt, keyptum okkur nýja tík í ágúst hana Ck's Nikita sem kom til okkar í nóvember og síðan var OB-II OB-I Vonziu's Asynja pöruð við hann ISCh RW-16 RW-15 Juwika Fitness og er fyrst gotið okkar væntanlegt í kringum 23 janúar 2017. Ásamt öllum námskeiðunum, prófunum, sýningunum og öðrum viðburðum sem voru haldnir á árinu.
Það er ekki hægt að segja annað en að við erum spent fyrir nýja árinu og því sem það ber í skauti sér.
Væntanlegt fyrsta Forynju gotið
Seinnipartinn í nóvember pöruðum við OB-II OB-I Vonziu's Asynju og ISCh RW-16 RW-15 Juwika Fitness og eru nú hvolpar væntanlegir í lok janúar. Mikill spenningur er í okkur með þetta fyrsta got enda mikill metnaður farið í allan undirbúning við það.
Asynja eða Ynja er innflutt frá bretlandi og á bakvið hana standa margir af frægustu hundum í sögunni. Þar má helst telja 2x VA1 Vegas du Haut Mansard og VA1 Zamp vom Thermodos sem báðir henta mjög vel á móti stofninum sem til er hér á landi. Ynja hefur staðið sig gríðarlega vel á sýningum hérlendis síðan að hún kom til landsins. Hún varð besti hvolpur tegundar og fjórði besti hvolpur sýningar stuttu eftir að hún kom úr einangrun, hefur oft raðað sér í sæti um bestu tík tegundar og er með 1 íslenskt meistarastig. Aðal áherslan hefur þó verið með Ynju í vinnu, en hún er eini hundurinn á Íslandi sem bæði er með hlýðnimeistaratitlana OB-I og OB-II og hefur verið stigahæsti hundur í hlýðni síðustu ár.
Juwika Fitness eða Leó er stigahæsti hundur landsins árið 2016. Hann kom frá Þýskalandi í fyrra og varð meistari strax á 3 sýningum. Hann hefur alltaf raðað sér í efstu sæti um besta rakka tegundar og er eini rakkinn á landinu sem hefur hlotið RW titil síðan að hann kom til landsins. Leó er með eina athiglisverðustu og flottustu ættbók sem nokkur hundur hefur komið með til landsins, en hann er undan frábærum ræktunarhundum í báðar ættir. Leó hefur einnig bæði lokið hlýðni brons og spori ásamt því að vera með eitt besta geðslag sem hægt er að finna í rakka.
Pörunin er því virkilega spennandi en með henni erum við að línurækta inní mikið af allra bestu hundum í ræktun í gegnum tíðina. Hugsunin á bakvið þessa pörun er því mikil og tilhlökkunin eftir því.
Þeir sem hafa áhuga á að komast á biðlista eftir hvolpum frá okkur geta haft samband á forynju@gmail.com
Jólakaffi Schaferdeildarinnar 13.12.2016
Í gærkvöldi var haldið árlegt jólakaffi Schaferdeildarinnar þar sem stigahæðstuhundar ársinns eru heiðraðir fyrir bæði árángur á sýningum og vinnu.
Vonziu's Asynja var heiðruð fyrir árángur sinn í vinnu og var annað árið í röð stigahæðsti schafer hundurinn í Hlýðni 2.
Ck's Nikita
Þá er hún NIkita loksins komin til okkar, við náðum í hana í dag og var hún alveg svaka kát með það að komast út. Við skelltum okkur í smá göngutúr með hana, Ynju og Loka en þar sem það var orðið svo dimmt voru engar myndir teknar. En það voru nokkrar myndir teknar þegar við vorum komin inn heima.
Nikita í einangruninni.
Núna er farið að liða að seinni hlutanum af dvölinni hennar Nikitu í einangrunarstöðinni. Allt gengur glimrandi vel og eru þau voða hrifin af henni. Nikita á að koma til okkar á miðvikudaginn í næstu viku og bíðum við spennt eftir henni.
Fengum senda mynd af henni úr einangruninni
Nikita á leiðinni til landsinns.
Gaman að segja frá því að fyrr í þessum mánuði hafði einangrunarstöðin samband við okkur, það hafði losnað pláss hjá þeim í nóvember og hvort að ég gæti nýtt það. Þar sem við vorum tilbúin með allar sprauturnar hennar þá slógum við til og okkur var að berast tilkynning frá Mast að allir pappírarnir væru í lægi og hún mætti koma til landsinns. Þannig að hún lendir hér 31 okt. og verður í einangruninni til 30 nóv. Núna bíðum við bara spennt eftir að fá hana til okkar.
Dagur Ungmennadeildarinnar.
Jón Ingi og Ynja tóku þátt á Degi Ungmennadeildarinnar í dag, tóku þau þátt í aldurs flokki 3-5 ára og stóðu sig með prýði saman.
Væntanleg til Forynju ræktunar Ck's Nikita.
Við hjá Forynju ræktun festum kaup nýrri Schafer tík á dögunum, tíkin kemur frá Tyrklandi og hún heitir Ck's Nikita. Nikita er væntanleg til landsinns í janúar á næsta ári og er hún stödd í Noregi hjá vinafólki og verður þar þanngað til að hún getur komið til landsinns. Við erum alveg í skýjunum yfir þessari nýju viðbót og getum ekki beðið eftir að fá hana til landsinns.
Hægt er að sjá ættbókina hennar hér
Námskeið með Hilde á Akureyri.
Helgina 12 -14 ágúst kom norski hundaþjálfarinn Hilde Marthinsen til Akureyrar og hélt námskeið í bæði Hlýðni og Rallý og voru 8 sem komust að með hunda og síðan voru 4 sem mættu til að horfa á og mættum við Ynja hressar og kátar.
Á laugardeginum kynnti hún fyrir okkur Rally sem er alveg gífurlega skemmtilegt, þetta er nokkuð nýtt sport og getum við ekki beðið eftir því að það verði haldið fleirri námskeið og farið að keppa í Rallý.
Á sunnudeginum tókum við fyrir nokkrar æfingar Hlýðni 3, Hilde gaf okkur góð og skemmtileg ráð til að æfa, þannig að við förum vel undirbúnar í haustið.
Flotti hópurinn sem mætti á námskeiðið hjá Hilde.
Sumarsýning HRFÍ 23-24 Júlí.
Helgina 23.-24. júlí var haldin tvöföld útisýning á vegum HRFÍ. Á laugardeginum var Reykjavík Winner og á sunnudeginum var Alþjóðleg hundasýning og mættu 32 snögghærðir Schäferhundar til leiks báða dagana og keppti Ynja í Vinnuhundaflokki og varð best í sínum flokki með Exelent og Meistaraefni báða dagana.